20.11.2012
Ferðamálastofa hefur samið við Stefnu hugbúnaðarhús um endurgerð vefsins ferdamalastofa.is. Verður nýr vefur opnaður fljótlega á nýju ári.
Þjóna greininni beturMeð endurgerð vefsins er markmið Ferðamálastofu að veita atvinnugreininni, og öðrum sem vefurinn á að nýtast, enn betri þjónustu en áður. Á vefnum er að finna margháttaðan fróðleik um íslenska ferðaþjónustu og starfsemi Ferðamálastofu, svo sem tölfræði, fræðslurit, lagaumhverfi, umhverfismál, útgáfumál og leyfismál ásamt ýmsu öðru. Þá er kappkostað að hafa þar tengingar á aðra vefi og upplýsingabrunna er varða íslenska ferðaþjónustu. Fréttaþáttur vefsins hefur verið öflugur og þar er einnig markmiðið að koma á framfæri öllu því sem er á döfinni hjá atvinnugreininni, svo sem fundum, ráðstefnum, námskeiðum o.fl.
Um StefnuStefna hugbúnaðarhús einbeitir sér að hönnun, þróun og sölu á hugbúnaði á sviði veflausna og hefur náð góðum árangri með vefumsjónarkerfið Moya, veflausnarforritið Matartorg og ýmis bókunarkerfi s.s. Travelbooking. Stefna hefur einnig unnið að fjölmörgum sérlausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir og veitt ráðgjöf um rekstur upplýsingakerfa og tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum.
Mynd:Róbert Freyr Jónsson, sölu- og markaðsstjóri Stefnu og Halldór Arinbjarnarson, upplýsingastjóri Ferðamálastofu, skrifa undir samninginn.
Lesa meira
16.11.2012
Umhverfisstofnun hefur, eins og undanfarin ár, ákveðið að loka tímabundið neðri gönguleið að Gullfossi vegna mikillar hættu sem getur skapast þar yfir vetrartímann af völdum hálku og snjóalaga.
Stígnum verður lokað frá og með 16.nóvember þar til aðstæður verða betri. Sett verða upp skilti sem útskýra lokunina og varað við þeirri hættu sem þarna getur skapast á íslensku, ensku, frönsku og þýsku.
Það er eindregin ósk Umhverfisstofunar að þessari lokun verði mætt með skilningi af ferðafólki og ferðaþjónustuaðilum sem fara með fólk að fossinum. Frekari upplýsingar fást hjá Aðalbjörgu Birnu Guttormsdóttur hjá deild náttúruverndar á Umhverfisstofnun.
Mynd: Gullfoss að vetriRagnar Th. Sigurðsson, arctic-images.com
Lesa meira
15.11.2012
Nýsköpunarverðlaun SAF – Samtaka ferðaþjónustunnar 2012 voru afhent á Grand Hótel Reykjavík í dag en þetta er í níunda sinn sem samtökin veita verðlaunin.
Ferðaskipuleggjendurnir Pink Iceland hlutu verðlaunin að þessu sinni en fyrirtækið sérhæfir sig í að þjónusta samkynhneigða ferðalanga sem vilja koma til Íslands.
Markaðssetning að þörfum skilgreindra hópa er leiðin til fá til landsins fleiri en þá sem vilja aðeins upplifa náttúru og víðerni, segir í tilkynningu frá SAF. „Landið hefur meira að bjóða og heimsþekkt umburðarlyndi gagnvart samkynhneigðum og sterk réttarstaða þeirra hefur Pink Iceland gert að aðdráttarafli sem leggur til uppbyggingar ferðaþjónustu í takti við þessi markmið.“
Í rökstuðningi segir að eftirfarandi hafi einkum legið til grundvallar ákvörðun dómnefndar:
Nú þegar gestum til landsins fjölgar sem aldrei fyrr er bæði mikilvægt og skynsamlegt að dreifa þessum gestafjölda yfir landið og árið. Forsenda þess að það sé hægt er að greina þann hóp betur sem til landsins sækir, væntingar hans og þarfir, og ekki síst hluta hann niður eftir þessari greiningu. Með vandaðri markaðshlutun og faglegri markaðssetningu sem nýtir sér niðurstöður hennar verður hægt að skapa nýjar vörur sem nýta sér nýjar og jafnvel áður óþekktar auðlindir íslenskrar ferðaþjónustu.
Með verðlaunahöfunum á myndinni eru Árni Gunnarsson, formaður SAF, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem afhenti verðlaunin.
Nánari upplýsingar og myndir á vef SAF
Lesa meira
13.11.2012
Alls hafa 62 fyrirtæki sótt um þátttöku í VAKANUM, hinu nýja gæða og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar sem fór af stað fyrr á árinu. Af þeim eru fjögur fyrirtæki sem hafa lokið ferlinu og eru fullgildir þátttakendur í VAKANUM.
Þau fyrirtæki sem lokið hafa úttektarferli eru Elding hvalaskoðun, Bílaleiga Akureyrar - Höldur, Iceland Excursions- Allrahanda og Atlantic ferðaskrifstofa. Meðfylgandi mynd var einmitt tekin þegar þau fengu viðurkenningar sínar afhentar.
45 fyrirtæki í úttektarferliSamtals 45 fyrirtæki til viðbótar eru í úttektarferli og nokkur þeirra eru á lokastigum í umsóknarferlinu. Sjá má lista yfir nöfn þessara fyrirtækja inn á heimasíðu VAKANS http://www.vakinn.is/Vakinn/thatttakendur/
Þá er nú unnið hörðum höndum að innleiðngu næsta hluta kerfisins sem er stjörnuflokkun fyrir gististaði og er stefnt á að taka hann í notkun á komandi ári.
Lesa meira
12.11.2012
Evrópska ferðamálaráðið ETC gefur ársfjórðungslega út skýrslu um þróun og horfur í ferðamálum álfunnar. Skýrslan fyrir þriðja ársfjórðung var að koma út og ljóst að Íslendingar geta vel við unað í samanburði við önnur aðildarlönd ETC.
Sem kunnugt er hafa mörg Evrópulönd verið að takast á við erfiðar efnahagslegar aðstæður. Í því umhverfi hefur ferðaþjónstan í álfunni sýnt styrk sinn og flest Evrópulönd geta státað af fjölgun ferðamanna það sem af er ári, samanborðið við fyrra ár, bæði frá fjærmörkuðum og öðrum Evrópulöndum.
Efnahagsástandið hefur áhrifÞó hefur hægt á vexti greinarinnar eftir því sem liðið hefur á árið, sem merkja má bæði af tölum frá flugfélögum og nýtingu gistirýmis. Þetta telur ETC að megi a.m.k. að hluta til skýra í ljósi efnahagsástandsins, þ.e. fólk leitar í auknu mæli í ódýrari valkosti og styttri ferðir, bæði innan eigin lands og innan álfunnar.
Áhyggjur af eftirspurn og verðlaginguÞá virðist eftirspurn eftir hótelgistingu vera minni en aukning í ferðalögum gefur tilefni til að ætla, sem geti bent til þess að fólk sæki í auknu mæli í ódýrari form gistingar. Þá benda tölur til að erfitt geti reynst að halda uppi eða hækka verð á ferðaþjónustu, sem komið geti niður á afrakstri greinarinnar. Hvað varðar framtíðarhorfur þá telur ETC að þær verði áfram í nokkurri óvissu, í ljósi ótryggs efnahagsástands álfunnar.
Ísland víðast við toppinnSem fyrr segir getur Ísland vel við unað í samanburði við önnur Evrópulönd. Gildir það hvort sem horft er til fjölgunar ferðamanna eða talna um nýtingu hótelgistingar.
Skýrsluna í heild má nálgast hér að neðan
European Tourism 2012 - Trends and Prospects (PDF - 2 MB)
Lesa meira
10.11.2012
Fornleifavernd ríkisins, í samvinnu við Skeiða- og Gnúpverjahrepp og Arkitektafélag Íslands, efndu í sumar til almennrar hugmyndasamkeppni um tillögur að hönnun ásýndar og umhverfis fornleifa sem eru við Stöng í Þjórsárdal.
Úrslit voru kunngerð í vikunni og kallast verðlaunatilagan „Stöngin inn“.
Minjastaður í fyrsta skipti hannaður heildrænt Með verkefninu sem er minjastaður á Íslandi í fyrsta skipti hannaður heildrænt með hliðsjón af umhverfisþáttum og með það í huga að gera hann aðgengilegan og áhugaverðan fyrir almenning. Hér er því um frumkvöðlaverkefni að ræða. Áhugi er fyrir að gera sem flestar af fornleifunum í dalnum aðgengilegar fyrir ferðamenn á næstu árum. Hugsanlegt er að yfirfæra megi hugmyndina að fullu eða að hluta yfir á aðrar fornleifar í dalnum. Markmiðið er að nýta megi lausnina sem tillögu að því hvernig megi vinna að svipuðum verkefnum í framtíðinni á öðrum íslenskum minjastöðum.
Vel varðveittar minjarMinjarnar í Þjórsárdal eru hvað best varðveittar allra minja frá víkingaöld, þökk sé ef svo má segja, öskufalli sem lagði byggðina í rúst fyrir mörgum öldum. Færa á rústirnar í upprunalegt horft og byggja yfir þær.
Gefur góð fyrirheit um heilsteypta umgjörðÞau Karl Kvaran og Sahar Ghaderi frá Íran urðu hlutskörpust en þau hafa mest unnið á meginlandi Evrópu, aðallega í Frakklandi. Timburpallur verður reistur yfir gamla bæinn að Stöng og birtan gegnum timbrið á hliðunum vísar í ljóstýrur í rökkvuðum hýbýlum fyrri tíma. Verðlaunatillagan þykir afgerandi og sterk og gefa góð fyrirheit um heilsteypta umgjörð um hinar merku minjar. Mynd af verðlaunatillögunni má sjá hér með fréttinni en rökstuðning dómnefndar og nánari upplýsingar má nálgast í PDF-skjalinu hér að neðan.
Stöngin inn (PDF)
Lesa meira
09.11.2012
Nemendur úr Hótel- og matvælaskólanum í MK og hótelstjórnunarnemi úr César Ritz náminu sýndu góðan árangur í árlegri nemakeppni Evrópusamtaka hótel-, matvæla- og ferðamálaskóla sem haldin var í Makedóníu dagana 8.-13. október síðastliðinn. Komu meðal annars heim með bronsverðlaun í eftirréttagerð.
Nemakeppnin er liðakeppni þar sem dregnir eru saman þátttakendur frá ólíkum löndum sem síðan spreyta sig á verkefnum tengdum áherslusviðum þeirra í námi. Að þessu sinni var keppt í eftirréttagerð, gestamóttöku, framreiðslu, barþjónustu, ferðakynningum, matreiðslu og stjórnun. Nemendurnir sem kepptu fyrir hönd Íslands voru Andri Már Ragnarsson, bakaranemi og Stefanía Höskuldsdóttir, nemi í César Ritz hótelstjórnunarfræðum.
Nánar í fréttatilkynningu
Lesa meira
09.11.2012
Undanfarin ár hafa Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) í samstarfi við Opna háskólinn í Reykjavík boðið upp á hagnýtt stjórnendanám. SAF hefur nú ákveðið að endurskoða námið, bjóða upp á einstök hagnýt námskeið og hefur fengið reynslumikla aðila úr ferðaþjónustu sem leiðbeinendur á námskeiðunum. Ferðaþjónustuaílar eru hvattir til að nýta tækifærið og vakin er athygli á því félagsmenn SAF fá sérstakan afslátt af námskeiðunum.
Þegar er tveimur námskeiðum af þremur lokið, þ.e. Árangursrík viðskipti á netinu fyrir ferðaþjónustuaðila og Fjármál og áætlanagerð í ferðaþjónustu. Þriðja námskeiðið, Markvisst markaðsstarf í ferðaþjónustu verður haldið 27. nóvember. Leiðbeinandi er Rósbjörg Jónsdóttir
Kennsla fer fram í Opna háskólanum í HR að Menntavegi 1, við Nauthólsvík. Hvert námskeið er samtals átta klukkustundir og er kennt frá kl. 9:00 – 17:00.
Hvert námskeið kostar 45.000 krónur en sértilboð til félagsmanna SAF er 39.000 krónur.
Hægt er að smella á hlekkinn hér að ofan til að skrá sig og nálgast nánari upplýsingar um námskeiðin.
Lesa meira
07.11.2012
"Hugsaðu þér stað!" er yfirskrift ferðamálaþings 2012 sem Ferðamálastofa efnir til föstudaginn 23. nóvember. Þingið er haldið í Hörpu, Kaldalóni, kl 13-17.
Þingið er að þessu sinni helgað mikilvægi heildasýnar við uppbyggingu áfangastaða. Það hefst með ávarpi ráðherra ferðamála, Steingríms J. Sigfússonar og í lokin verða umhverfisverðlaun Ferðamálastofu afhent. Þingstjóri er Sigrún Björk Jakobsdóttir, hótelstjóri Icelandair Hótel Akureyri. Þeir sem eiga lengra að sækja geta fylgst með ráðstefnunni í beinni útsendingu á Netinu.
Dags:
23. nóvember kl. 13-17
Staður:
Harpa, Kaldalón
Aðgangur:
Ókeypis
Skráning:
Skráning á Ferðamálaþing 2012 (ekki nauðsynlegt fyrir þau sem ein-göngu ætla að fylgjast með á Netinu)
Dagskrá:13:00 Ávarp ráðherra ferðamála og setning - Steingrímur J. Sigfússon13:20 Í upphafi skyldi endinn skoða - Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri13:35 How to make a destination? - From slag heaps to a successful tourist destination – Anya Niewerra, General Director – Tourist Board South Limburg, Hollandi14:20 Stutt kaffihlé14:30 Áfangastaðurinn Siglufjörður – Finnur Yngvi Kristinsson, verkefnisstjóri Rauðku 14:50 Mikilvægi ferðaþjónustu fyrir sveitarfélög – Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði15:10 Samspil þjóðgarðs og ferðaþjónustu– Hjörleifur Finnsson, þjóðgarðsvörður í Vatnajökulsþjóðgarði15:30 Ásýnd og aðkoma þéttbýliskjarna á Íslandi – Sigrún Birgisdóttir, fagstjóri í hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.15:45 Umræður og fyrirspurnir16:00 Afhending umhverfisverðlauna Ferðamálastofu16:15 Ráðstefnulok og léttar veitingar
Þingstjóri Sigrún Björk Jakobsdóttir, hótelstjóri Icelandair Hótel Akureyri
Sent út á netinuÞeir sem eiga lengra að sækja geta fylgst með ráðstefnunni í beinni útsendingu á Netinu. Leiðbeiningar til að tengjast eru hér að neðan. Athugið að þau sem ætla að fylgjast með á Netinu þurfa ekki að skrá sig sérstaklega á ráðstefnuna.
Uppsetning á nýjustu útgáfu Java:Til að byrja með er nauðsynlegt að tryggja að tölvan sé með nýjustu útgáfu af Java forritinu (er á öllum tölvum en ekki víst að þið séuð með það nýjasta). Þannig að best er að byrja á að fara inn á www.java.com, hlaða þar niður nýjustu útgáfu (áberandi hnappur á miðjum skjánum) og setja upp. Þetta getur tekið nokkrar mínútur.
Tengjast fundinum:Til að tengjast fundinum er farið inn á þessa vefslóð sem verður virk skömmu áður en ráðstefnan hefst:https://fundur.thekking.is/startcenter/Join.xhtml?sinr=846782774&sipw=nv64 Athugið að samþykkja þau skilaboð sem upp koma en í flestum tilfellum kemur tvívegis upp gluggi þar sem smellt er á „run“. Eftir það á fundur að hefjast.
Lesa meira
06.11.2012
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 44.994 erlendir ferðamenn frá landinu í október síðastliðnum eða um sex þúsund fleiri en í sama mánuði árið 2011.
Aukning milli ára 15,9%Ferðamenn í október í ár voru 15,9% fleiri en í október árið 2011. Þegar litið er til fjölda ferðamanna á ellefu ára tímabili (2002-2012) má sjá að jafnaði 10,2% aukningu milli ára frá árinu 2002.
Bretar, Bandaríkjamenn og Norðmenn 45% ferðamannaAf einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í október frá Bretlandi (21,0%), Bandaríkjunum (13,1%) og Noregi (11,1%). Ferðamenn frá Danmörku (7,5%), Þýskalandi (6,0%) og Svíþjóð (5,9%) fylgdu þar á eftir.
Af einstaka þjóðum fjölgaði Bretum og Norðmönnum mest milli ára í október. Þannig komu um 1.800 fleiri Bretar í ár en í fyrra og tæplega 1.300 fleiri Norðmenn.
Einstök markaðssvæðiÞegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá aukningu frá öllum mörkuðum í október nema N-Ameríku sem stendur í stað. Aukningin var 22,8% frá Bretlandi, 18,3% frá Mið- og S-Evrópu, 15,0% frá Norðurlöndunum og 23,6% frá löndum sem flokkuð eru undir "Annað".
Ferðamenn frá áramótumÞað sem af er ári hefur 581.951 erlendur ferðamaður farið frá landinu eða 85.055 fleiri en á sama tímabili í fyrra en um er að ræða 17,1% aukningu milli ára. Aukning hefur verið frá öllum mörkuðum, 34,0% aukning frá Bretlandi, 16,7% frá N-Ameríku, 12,6% frá Mið- og S-Evrópu, 9,8% frá Norðurlöndunum og 23,2% frá löndum sem eru flokkuð undið "Annað".
Ferðir Íslendinga utanUm 35 þúsund Íslendingar fóru utan í október síðastliðnum, 10,4% fleiri en í október 2011. Frá áramótum hafa 310.698 Íslendingar farið utan, 6,3% fleiri en árinu áður þegar brottfarir mældust um 292 þúsund.
Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Talnaefni/Ferðamannatalningar hér á vefnum.
Nánari upplýsingar veitir Oddný Þóra Óladóttir, rannsóknastjóri oddny@ferdamalastofa.is
Október eftir þjóðernum
Janúar - október eftir þjóðernum
Breyting milli ára
Breyting milli ára
2011
2012
Fjöldi
(%)
2011
2012
Fjöldi
(%)
Bandaríkin
5.549
5.912
363
6,5
Bandaríkin
70.721
85.000
14.279
20,2
Bretland
7.703
9.458
1.755
22,8
Bretland
57.684
77.313
19.629
34,0
Danmörk
3.450
3.392
-58
-1,7
Danmörk
37.815
37.753
-62
-0,2
Finnland
779
935
156
20,0
Finnland
11.180
12.289
1.109
9,9
Frakkland
1.598
1.196
-402
-25,2
Frakkland
34.142
38.963
4.821
14,1
Holland
1.475
1.414
-61
-4,1
Holland
18.709
19.924
1.215
6,5
Ítalía
302
338
36
11,9
Ítalía
11.818
13.063
1.245
10,5
Japan
535
671
136
25,4
Japan
5.678
8.266
2.588
45,6
Kanada
1.999
1.702
-297
-14,9
Kanada
17.270
17.728
458
2,7
Kína
637
1.080
443
69,5
Kína
7.718
12.245
4.527
58,7
Noregur
3.747
5.008
1.261
33,7
Noregur
38.408
46.481
8.073
21,0
Pólland
633
754
121
19,1
Pólland
12.344
12.933
589
4,8
Rússland
216
413
197
91,2
Rússland
2.430
4.466
2.036
83,8
Spánn
485
931
446
92,0
Spánn
13.545
14.610
1.065
7,9
Sviss
336
1.021
685
203,9
Sviss
9.887
12.457
2.570
26,0
Svíþjóð
2.440
2.648
208
8,5
Svíþjóð
29.877
32.280
2.403
8,0
Þýskaland
2.230
2.703
473
21,2
Þýskaland
54.745
61.856
7.111
13,0
Annað
4.722
5.418
696
14,7
Annað
62.925
74.324
11.399
18,1
Samtals
38.836
44.994
6.158
15,9
Samtals
496.896
581.951
85.055
17,1
Október eftir markaðssvæðum
Janúar - október eftir markaðssvæðum
Breyting milli ára
Breyting milli ára
2011
2012
Fjöldi
(%)
2011
2012
Fjöldi
(%)
Norðurlönd
10.416
11.983
1.567
15,0
Norðurlönd
117.280
128.803
11.523
9,8
Bretland
7.703
9.458
1.755
22,8
Bretland
57.684
77.313
19.629
34,0
Mið-/S-Evrópa
6.426
7.603
1.177
18,3
Mið-/S-Evrópa
142.846
160.873
18.027
12,6
N-Ameríka
7.548
7.614
66
0,9
N-Ameríka
87.991
102.728
14.737
16,7
Annað
6.743
8.336
1.593
23,6
Annað
91.095
112.234
21.139
23,2
Samtals
38.836
44.994
6.158
15,9
Samtals
496.896
581.951
85.055
17,1
Ísland
32.153
35.481
3.328
10,4
Ísland
292.354
310.698
18.344
6,3
Lesa meira