05.09.2012
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 115.279 erlendir ferðamenn frá landinu í ágúst síðastliðnum eða um 13.400 fleiri en í sama mánuði árið 2011. Talningar Ferðamálastofu hafa sýnt fjölgun alla mánuði ársins 2012 en fjölgunin í ágúst er svipuð og aðra mánuði í sumar, júní (13,3%) og júlí (14,7%).
Tvöfalt fleiri ferðamenn á ellefu ára tímabiliFerðamenn í ágúst voru 13,2% fleiri en í ágúst árið 2011. Þegar litið er til fjölda ferðamanna í ágústmánuði á ellefu ára tímabili (2002-2012) má sjá 8,8% aukningu milli ára að jafnaði frá árinu 2002.
Þjóðverjar, Bandaríkjamenn og Frakkar nærri 40% ferðamannaAf einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í ágúst frá Þýskalandi (14,4%), Bandaríkjunum (13,7%) og Frakklandi (10,6%). Ferðamenn frá Bretlandi (6,8%), Danmörku (5,3%), Noregi (5,2%), Ítalíu (4,9%), Spáni (4,8%) og Svíþjóð (4,3%) fylgdu þar á eftir.
Af einstaka þjóðum fjölgaði Þjóðverjum, Bandaríkjamönnum, Frökkum og Kínverjum mest í ágúst milli ára. Þannig komu um 2.600 fleiri Þjóðverjar í ár en í fyrra, 2.000 fleiri Bandaríkjamenn, um 1.900 fleiri Frakkar og um 1.100 fleiri Kínverjar.
Einstök markaðssvæðiÞegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá aukningu frá öllum mörkuðum. Mest er hún þó frá löndum sem eru flokkuð undir "Annað " eða 23%. Aukningin frá Bretlandi, Mið- og S-Evópu og Norður Ameríku er svipuð eða um og yfir tíu prósent. Norðurlandabúum fjölgar hlutfallslega minnst eða um 3,1%.
Ferðamenn frá áramótumÞað sem af er ári hafa 472.285 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða 65.801 fleiri en á sama tímabili í fyrra en um er að ræða 16,2% aukningu milli ára. Ferðamönnum hefur fjölgað verulega milli ára frá öllum mörkuðum. Þannig hefur Bretum fjölgað um 34,4%, N-Ameríkönum um 19,0%, Mið- og S-Evrópubúum um 11,5% og ferðamönnum sem eru flokkuð undið "Annað" um 21,8%. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað í minna mæli eða um 6,9%.
Ferðir Íslendinga utanUm 37 þúsund Íslendingar fóru utan í ágúst síðastliðnum, 8,3% fleiri en í ágúst 2011. Frá áramótum hafa 242.904 Íslendingar farið utan, 5,9% fleiri en árinu áður þegar brottfarir mældust um 229 þúsund.
Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Talnaefni/Ferðamannatalningar hér á vefnum. Nánari upplýsingar veitir Oddný Þóra Óladóttir, rannsóknastjóri oddny@ferdamalastofa.is
Ágúst eftir þjóðernum
Janúar - ágúst eftir þjóðernum
Breyting milli ára
Breyting milli ára
2011
2012
Fjöldi
(%)
2011
2012
Fjöldi
(%)
Bandaríkin
13.821
15.825
2.004
14,5
Bandaríkin
56.900
69.268
12.368
21,7
Bretland
6.997
7.784
787
11,2
Bretland
45.791
61.542
15.751
34,4
Danmörk
6.027
6.110
83
1,4
Danmörk
30.471
30.223
-248
-0,8
Finnland
2.026
1.542
-484
-23,9
Finnland
9.006
9.562
556
6,2
Frakkland
10.376
12.258
1.882
18,1
Frakkland
30.141
34.121
3.980
13,2
Holland
3.619
4.006
387
10,7
Holland
15.208
16.465
1.257
8,3
Ítalía
5.714
5.653
-61
-1,1
Ítalía
10.720
11.775
1.055
9,8
Japan
741
828
87
11,7
Japan
4.498
5.783
1.285
28,6
Kanada
3.232
3.652
420
13,0
Kanada
12.677
13.538
861
6,8
Kína
1.323
2.417
1.094
82,7
Kína
5.966
9.514
3.548
59,5
Noregur
5.393
5.956
563
10,4
Noregur
29.401
33.987
4.586
15,6
Pólland
2.035
2.091
56
2,8
Pólland
10.758
10.986
228
2,1
Rússland
444
1.215
771
173,6
Rússland
1.972
3.681
1.709
86,7
Spánn
5.501
5.547
46
0,8
Spánn
11.821
11.838
17
0,1
Sviss
2.957
3.696
739
25,0
Sviss
8.710
10.411
1.701
19,5
Svíþjóð
4.536
4.926
390
8,6
Svíþjóð
24.014
25.493
1.479
6,2
Þýskaland
14.001
16.633
2.632
18,8
Þýskaland
46.624
52.735
6.111
13,1
Annað
13.098
15.140
2.042
15,6
Annað
51.806
61.363
9.557
18,4
Samtals
101.841
115.279
13.438
13,2
Samtals
406.484
472.285
65.801
16,2
Ágúst eftir markaðssvæðum
Janúar - ágúst eftir markaðssvæðum
Breyting milli ára
Breyting milli ára
2011
2012
Fjöldi
(%)
2012
2012
Fjöldi
(%)
Norðurlönd
17.982
18.534
552
3,1
Norðurlönd
92.892
99.265
6.373
6,9
Bretland
6.997
7.784
787
11,2
Bretland
45.791
61.542
15.751
34,4
Mið-/S-Evrópa
42.168
47.793
5.625
13,3
Mið-/S-Evrópa
123.224
137.345
14.121
11,5
N-Ameríka
17.053
19.477
2.424
14,2
N-Ameríka
69.577
82.806
13.229
19,0
Annað
17.641
21.691
4.050
23,0
Annað
75.000
91.327
16.327
21,8
Samtals
101.841
115.279
13.438
13,2
Samtals
406.484
472.285
65.801
16,2
Ísland
34.188
37.023
2.835
8,3
Ísland
229.392
242.904
13.512
5,9
Lesa meira
03.09.2012
Fyrir helgi gekk Framkvæmdasjóður ferðamannastaða frá fyrstu lokagreiðslu til styrkþega. Um var að ræða styrk til Gunnarsstofnunar vegna skipulagsvinnu og hönnunar á útsýnispalli og minjasvæði að Skriðuklaustri.
Einhver umfangsmesta fornleifarannsókn síðari áraUppgreftri Ágústínusarklausturs á Skriðuklaustri í Fljótsdal sem starfrækt var 1493-1554 lauk síðasta sumar. Að sögn Skúla Björns Gunnarssonar, forstöðumanns Gunnarsstofnunar, er um að ræða einhverja umfangsmestu fornleifarannsókn síðari ára en hún hófst árið 2002 með framlögum Kristnihátíðarsjóðs. Í ár hefur verið unnið að frágangi minjasvæðisins og þann 19. ágúst síðastliðinn var það opnað formlega af mennta- og menningarmálaráðherra. Í samráði við Fornleifavernd ríkisins hafa grunnform klausturbygginga og kirkju verið hlaðin upp og búið er að tyrfa veggi og umhverfi þannig að hægt er að feta í fótspor þeirra sem dvöldu í klaustrinu á 16. öld. “Tímamótin nú markast einnig af þeim 500 árum sem liðin eru frá því Stefán Jónsson Skálholtsbiskup vígði klausturkirkjuna,” segir Skúli Björn og því má bæta við að samtímis kom einnig út bók um rannsóknina á klaustrinu að Skriðu eftir dr. Steinunni Kristjánsdóttur.
Hönnun á útsýnispalli og skipulagning á minjasvæðinu Sem fyrr segir var styrkur Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, sem var að upphæð 500 þúsund krónur, nýttur í hönnun á útsýnispalli og skipulagningu á minjasvæðinu í tengslum við gerð verndaráætlunar fyrir klausturminjarnar. Gott útsýni er yfir minjasvæðið og geta gestir fræðst um staðinn á upplýsingaskiltum sem eru á pallinum og af skiltum sem komið hefur verið fyrir í rústunum sjálfum. Landmótun ehf. og Verkfræðistofa Austurlands unnu hönnunarvinnu vegna útsýnispallsins en Tréiðjan Einir sá um byggingu hans. Sjá nánar á www.skriduklaustur.is
Næsti umsóknarfrestur til 10. septemberFramkvæmdasjóður Ferðamannastaða tók til starfa í byrjun þessa árs og er vistaður hjá Ferðamálastofu. Markmið og hlutverk sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fór fram í febrúar síðastliðnum og nú er einmitt verið að auglýsa eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2013. Umsóknarfrestur vegna þeirra er til 10. september næstkomandi. Nánar um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
Lesa meira
03.09.2012
Íslandsstofa auglýsir eftir þátttöku á World Travel Market ferðakaupstefnunni í London dagana 5.-8. nóvember.
World Travel Market er ein stærsta ferðakaupstefna í heimi og er haldin árlega. Sýningin verður opin í fjóra daga fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og tengda aðila (trade) en seinni tveir dagarnir eru einnig opnir almenningi. Sýningin fer fram í ExCel sýningarhöllinni í London líkt og undanfarin ár.
Íslandsstofa sér um að skipuleggja básinn og býður þar m.a. upp á fundaaðstöðu þar sem þátttakendum gefst kostur á að hitta viðskiptavini. Plássið á básnum er takmarkað og gildir því reglan fyrstur kemur - fyrstur fær. Áhugasamir eru því hvattir til að skrá sig hið fyrsta. Síðasti skráningardagur er 12. september.
Skráningareyðublað World Travel Market 2012 (Word)
Umsóknir skulu sendar til Heru Brá Gunnarsdóttur, hera@islandsstofa.is með cc. á Aðalstein Sverrisson adalsteinn@islandsstofa.is
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu World Travel Market
Lesa meira
01.09.2012
Frá og með deginum í dag heyra ferðamál undir nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem til varð með sameiningu inaðarráðuneytis, efnahags- og viðskiptaráðuneytis og landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytis.
Ráðherra verður Steingrímur J. Sigfússon og ráuneytisstjóri er Kristján Skarphéðinsson. Nýja ráðuneytið er til húsa að Skúlagötu 4 í Reykjavík og síminn er 545-9700.
Skrifstofur í ráðuneytinu verða 7 og málaflokkar 14 en hægt er að kynna sér skipulag nýja ráðuneytisins á vef þess.
www.atvinnuvegaraduneyti.is
Lesa meira
30.08.2012
Í dag gekkst KPMG fyrir fundi þar sem flutt voru fróðleg erindi um virðisaukaskatt og ferðaþjónustu. Innan ferðaþjónustunnar gilda flóknar reglur um virðisaukaskatt og misjafnt hvort aðilar innan hennar eru í virðisaukaumhverfi eða ekki. Einnig er þjónusta seld í báðum þrepum virðisaukaskatts.
Soffía Eydís Björgvinsdóttir fór stuttlega yfir þessar reglur og helstu álitaefni um virðisaukaskatt í ferðaþjónustu. Þá kynnti Alexander G. Eðvardsson niðurstöður könnunar KPMG á þeim miklu áhrifum sem fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á gistingu mun að hans mati hafa. Glærur frá erindum þeirra beggja má nálgast á vef KPMG.
Lesa meira
27.08.2012
Iðnaðarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Þar eru veittir styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins.
Umsóknarfrestur haustið 2012 er 20. september.
Markmið verkefnisins:
Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla og sprotafyrirtækjum
Nánar á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Lesa meira
24.08.2012
St. Pétursborg er meðal þriggja nýrra áfangastaða sem Icelandair hefur tilkynnt að flogið verði til næsta sumar. Þar með verður í fyrsta sinn í boði áætlunarflug á milli Rússlands og Íslands og því um viss tímamót að ræða. Hinir tveir nýju áfangastaðirnir eru Anchorage í Alaska og Zurich í Sviss.
Flugið til St. Pétursborgar hefst 1. júní og flogið verður tvisvar í viku til 17. september. Flugið tekur 4 klukkustundir, lennt er á Íslandi að morgni sem gefur kost á tengiflugi áfram vestur um haf.
Flugið til Zurich verður tvisvar í viku frá 1. júní til 14. september. Sama er með Anchorage í Alaska. Þangað verður einnig flogið tvisvar í viku, frá 15. maí til 15. september. Alaska er stærsta fylki Bandaríkjanna að flatarmáli og hefur beint áætlubarflug ekki áður veðir í boði til og frá Íslandi. Í frétt frá Icelandair kemur fram að unnið er að frágangi heildaráætlunar Icelandair fyrir árið 2013 og verður hún kynnt á næstunni.
Mynd: Frá St. Pétursborg / saint-petersburg.com
Lesa meira
23.08.2012
Auglýst hefur verið eftir styrkumsóknum frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Jafnframt hefur verið opnaður nýr vefur fyrir NATA og fara allar umsóknir þar í gegn á rafrænum eyðublöðum.
Ný vefsíðaÁ nýjum vef NATA á slóðinni www.nata.is er að finna allar helstu upplýsingar um samtökin, bæði á ensku og dönsku. Ítarlegar upplýsingar eru um styrkjamöguleika og meðal nýjunga eru rafræn umsóknareyðublöð þar sem allar umsóknir fara nú í gegn um, sem fyrr segir. Þá má einnig nefna nýja þjónustu þar sem fyrirtæki geta leitað eftir samstarfsaðilum í hinum löndunum, öðru eða báðum eftir atvikum.
Styrkir til tvenns konar verkefnaÍ samræmi við það sem samningur landanna kveður á um er hægt að sækja um styrki til tvennskonar verkefna. Annars vegar verkefna í ferðaþjónustu og hins vegar ferðastyrki, t.d. vegna skólahópa, íþróttahópa eða menningarverkefna.
Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu á milli landanna þriggja geta sótt um styrk að hámarki 100.000 danskar krónur, eða að hámarki 50% þeirra kostnaðarliða sem styrktir eru. Skulu umsóknir fela í sér samstarf milli einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Ekki eru veittir styrkir vegna launakostnaðar, ráðgjafar, útgáfu efnis eða vefsíðugerðar.
Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu.
Til markaðssetningar.
Til nýsköpunar- og – vöruþróunar.
Til að mynda tengslanet og miðla þekkingu.
Til gæða- og umhverfismála innan ferðaþjónustunnar.
Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi þátta:
Verkefnishugmyndar og gæða umsóknarinnar. Ófullgerðar umsóknir verða ekki teknar til greina.
Nýnæmis og nýsköpunargildis verkefnisins
Markaðstengingar
Kostnaðaráætlunar og annarrar fjármögnunar
Samfélagslegs gildis
Styrkir vegna kynnis- og námsferðaEitt af markmiðum samstarfssamnings um ferðamál á milli Íslands, Grænlands og Færeyja er að auka samskipti og fjölga heimsóknum á milli landanna þriggja. Hér með eru auglýstir ferðastyrkir til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Styrkjunum er einvörðungu ætlað að standa straum af ferðakostnaði, ekki gistingu eða uppihaldi. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 1.000 danskar krónur vegna ferðalaga milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar.
Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:
Skóla
Íþróttahópa
Tónlistarhópa
Annars menningarsamstarfs
Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi atriða:
Verkefnishugmynd
Gæði umsóknar. Ófullgerðar umsóknir verða ekki teknar til greina.
Gagnkvæmni og tengslamyndun
Kostnaðaráætlun, fjármögnun
Hvar er sótt um?Allar umsóknir þurfa að berast með rafrænum hætti á þar til gerðum umsóknarblöðum sem finna má á vef NATA. Vefurinn og umsóknarformin eru bæði á dönsku og ensku.
Nánari leiðbeiningar um umsóknir á vef NATA
Opna umsóknasíðu á vef NATA
SkilafresturLokafrestur til að skila umsókn er 10. september 2012. Umsóknir eða fylgigögn sem berast eftir þann tíma verða ekki tekin gild. Niðurstaða stjórnar NATA um úthlutun mun liggja fyrir um miðjan október.
Nánari upplýsingarNánari upplýsingar gefur starfsmaður NATA, Mette K. Kibsgaard, sími 00 298 30 9914 eða í gegnum netfangið mette@industry.fo
Lesa meira
22.08.2012
Sendiráð Íslands í Peking og Íslandsstofa hafa ákveðið að gefa út í nýtt og endurbætt kynningarefni um ferðaþjónustu á Íslandi í tengslum við China International Travel Mart (CITM) sem fer fram í Shanghai í nóvember.
Kynningarefnið samanstendur af Íslandskorti, landkynningarbæklingi og lítilli handbók (A5) með upplýsingum um ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Allir textar verða á kínversku og myndefni og framsetning verður valin með kínverskan markhóp í huga.
Fyrirtækjum stendur til boða að vera með einnar síðu auglýsingu í handbókinni fyrir aðeins 50.000 krónur. Ein síða er í boði fyrir hvert fyrirtæki og er gert ráð fyrir að prenta bókina í 5000 eintökum. Staðfesta þarf kaup á auglýsingu fyrir 5. september nk.
CITM fer fram í dagana 15.-18. nóvember á þessu ári í Shanghai New International Expo Centre í nýja viðskiptahverfinu Pudong í austurhluta Shanghai. Íslandsstofa, í samstarfi við sendiráðið í Peking, skipuleggur sameiginlegan bás fyrir íslensk fyrirtæki á sýningunni. Fyrirtæki sem taka þátt eru hvött til að vera með í handbókinni og koma sér þannig á framfæri.
Frekari upplýsingar veita:Hafliði Sævarsson hjá sendiráðinu í Peking, haflidi@mfa.is og Þorleifur Þór Jónsson hjá Íslandsstofu, thorleifur@islandsstofa.is.
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson, arctic-images.com
Lesa meira
16.08.2012
Fornleifavernd ríkisins í samvinnu við Skeiða- og Gnúpverjahrepp og Arkitektafélag Íslands efnir í sumar til almennrar hugmyndasamkeppni um tillögur að hönnun ásýndar og umhverfis fornleifa sem eru við Stöng í Þjórsárdal.
Minjastaður í fyrsta skipti hannaður heildrænt Með verkefninu sem er minjastaður á Íslandi í fyrsta skipti hannaður heildrænt með hliðsjón af umhverfisþáttum og með það í huga að gera hann aðgengilegan og áhugaverðan fyrir almenning. Hér er því um frumkvöðlaverkefni að ræða. Áhugi er fyrir að gera sem flestar af fornleifunum í dalnum aðgengilegar fyrir ferðamenn á næstu árum. Hugsanlegt er að yfirfæra megi hugmyndina að fullu eða að hluta yfir á aðrar fornleifar í dalnum. Markmiðið er að nýta megi lausnina sem tillögu að því hvernig megi vinna að svipuðum verkefnum í framtíðinni á öðrum íslenskum minjastöðum.
Keppnislýsing og samkeppnisgögnKeppnislýsing er aðgengileg á vef Arkitektafélags Íslands, www.ai.is, á vef Félags íslenskra landslagsarkitekta, www.fila.is og á vef Fornleifaverndar ríkisins, www.fornleifavernd.is . Samkeppnisgögn eru afhent á skrifstofu Arkitektafélags Íslands, Engjateigi 9, Reykjavík, á milli kl. 09:00 og 13:00 virka daga.
Nánari upplýsingar og verkefnaskilHægtb er að fá nánari upplýsingar hjá trúnaðarmanni samkeppninnar í síma 899 6225 eða með tölvupósti á netfangið harh@simnet.is. Tillögum skal skila til trúnaðarmanns, á skrifstofu Arkitekafélags Íslands að Engjateig 9 eigi síðar en 28. september 2012.
Lesa meira