Hvaða leyfi þarf ég?
Allir sem setja saman, skipuleggja, selja eða bjóða ferðir til sölu þurfa leyfi frá Ferðamálastofu. Leyfin eru tvenns konar:
- Leyfi ferðaskrifstofu:
Leyfið tekur til aðila sem falla undir lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Allir sem bjóða einhverskonar samsettar eða samtengdar ferðir sem eru lengri en 24 klst eða þar sem gisting er innifalin, verða að hafa leyfi sem ferðaskrifstofa.
- Leyfi ferðasala dagsferða:
Tekur til aðila sem selja ferðir sem ekki falla undir lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Leyfi ferðasala dagsferða er einungis fyrir þá sem bjóða aðeins stakar ferðir sem eru styttri en 24 klst. og fela ekki í sér gistingu. Hverskyns samsetning og samtenging við aðra þjónustu getur kallað á stærra leyfi.
Litli leiðsögumaðurinn
Til að aðstoða ferðaþjónustuaðila við að finna út undir hvaða leyfi þjónusta þeirra fellur bendum við á „Litla leiðsögumanninn“, gagnvirkan spurninga og leiðbeiningavef sem ætlað er leiða fólk áfram til niðurstöðu.
Umsóknir
Nánari upplýsingar um leyfi og umsóknir er að finna hér fyrir ferðasala dagsferða og hér fyrir ferðaskrifstofur.
Öryggisáætlanir
Vakin er athygl á að hver sá sem framkvæmir skipulagðar ferðir innan íslensks yfirráðasvæðis ber ábyrgð á að útbúa skriflega öryggisáætlun fyrir hverja tegund ferðar óháð því hvort hann selur ferðina beint til ferðamanna eða með milligöngu annars aðila. Nánari upplýsingar um öryggisáætlanir og gerð þeirra má nálgast hér.
Önnur leyfi
Umsækjanda ber að kanna hvort önnur leyfi eru nauðsynleg í tengslum við starfsemina.
- Samgöngustofa sér um útgáfu leyfa varðandi fólksflutninga hvort sem er á landi, í lofti eða á sjó, ám og vötnum.
- Sýslumenn sjá um útgáfu leyfa fyrir veitingastaði og gististaði.
- Heilbrigðiseftirlit gefa út rekstrarleyfi fyrir hestaferðir og ber að tilkynna slíka starfsemi til Matvælastofnunar (MAST), sjá www.mast.is Einnig veita heilbrigðiseftirlit starfsleyfi fyrir gististaði, veitingastaði og almenningssalerni.
- Umhverfisstofnun veitir leyfi vegna aksturs utan vega, framkvæmda innan friðlanda, ljósmynda- og kvikmyndatöku á svæðum sem heyra undir UST, hreindýraveiða og fuglaveiða
- Lögreglustjórar veita m.a. skotvopnaleyfi og leyfi fyrir fallhlífastökki
- Fiskistofa veitir leyfi vegna frístundaveiða