Fara í efni

Gistinætur heilsárhótela í september

Gisting september
Gisting september

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í september síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið þannig að til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

14% fjölgun í september 
Gistinætur á hótelum í september voru 156.000 samanborið við 136.500 í september 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 82% af heildarfjölda gistinátta í september en gistinóttum þeirra fjölgaði um 15% samanborið við september 2011. Á sama tíma voru gistinætur Íslendinga 11% fleiri en árið áður.

Fjölgun í öllum landshlutum
Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur 109.500 eða um 11% fleiri en í september 2011. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 30%, voru 12.900 samanborið við 9.900 í september 2011. Á Suðurlandi voru 15.900 gistinætur á hótelum í september sem er um 25% aukning samanborið við fyrra ár. Gistinætur á Austurlandi voru 6.300 í september og fjölgaði um 21%. Gistinóttum á Suðurnesjum fjölgaði milli ára um 13%, voru 6.600 samanborið við 5.800 í september 2011. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um 2% en þar var fjöldi gistinátta 4.700.

16% fjölgun fyrstu níu mánuði ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu níu mánuði ársins 2012 voru 1.421.900 til samanburðar við 1.222.000 á sama tímabili árið 2011. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 18% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 9%.

Nánar á vef Hagstofunnar