Fara í efni

Laurentic Forum

Laurentic Forum  er samstarfsvettvangur á milli Írlands og Kanada (Nýfundnaland og Labrador) sem teygir sig aftur til ársins 2006. Nýlega bættust Ísland og Noregur í hópinn.

Áhersla er á strandsamfélög landanna, sjálfbærni þeirra til framtíðar og helstu áskoranir. Megintilgangur verkefnisins er að skiptast á hugmyndum og læra hvert af öðru í gegnum sameiginleg verkefni, fræðslufundi og ráðstefnur.  Verkefninu er skipt upp í tvö megin þemu; ferðaþjónustu og bláa hagkerfið. Tengiliðir verkefnisins hér á landi eru Ferðamálastofa annarsvegar og Matís hinsvegar.

Nánar má lesa um Laurentic Forum með því að smella á hnappinn að neðanverðu.

Laurentic Forum 

  

Fyrirhugaðir viðburðir tengdir ferðaþjónustu á vegum Laurentic Forum:

29. nóvember 2022 - Ferðaþjónusta í sátt við nærsamfélagið

Þann 29. nóvember kl. 12:30 – 15:00 stendur Laurentic Forum fyrir áhugaverðri örráðstefnu með yfirskriftinni Ferðaþjónusta í sátt við nærsamfélagið / Embedding Torurism as a Trusted Partner in the Community. Ráðstefnuni er skiptu upp í tvö stutt erindi og síðan verða pallaborðsumræður um hvernig best er að virkja íbúa þar sem m.a. Arnheiður Jóhannsdóttir frá Áfangastaðastofur Norðurlands er þátttakandi.

Nánar um dagskránna og skráning er að finna hér. http://laurenticforum.com/

15. mars 2022 - Óáþreifanleg menning

Óáþreifanleg menning (Intangible Culture). Hvernig er henni haldið við og komið til skila til dæmis í ferðaþjónustu?

Sjá nánar hér 

Fjarfundur.

13. apríl 2022 - Stafrænar frásagnir

Stafræn frásögn (Digital Storitelling). Umfjöllun dæmi og frásagnir.

Sjá nánar hér 

Fjarfundur.