Fara í efni

Gagnagrunnur um ferðaþjónustuaðila

landshlutakort

Ferðamálastofa heldur utan um viðamesta gagnagrunn sem til er með upplýsingum um íslenska ferðaþjónustuaðila og þjónustu fyrir ferðafólk. Samstarf er við áfangastaðastofur um skráningu og viðhald upplýsinga.

Í grunninum eru nú upplýsingar um á fjórða þúsund ferðaþjónustuaðila um, bæði á ensku og íslensku. Skráningar í grunninn eru um 4.000 talsins í sex flokkum.

Í grunninum er m.a. að finna ítarlegar upplýsingar um:

  • Gistingu, s.s. hótel, gistiheimili, bændagistingu, farfuglaheimili, sumarhús, skála og tjaldsvæði
  • Afþreyingu og skipulagðar ferðir af öllu tagi
  • Samgöngur, s.s. rútur, báta, flug, bílaleigur, strætisvagna og leigubíla
  • Söfn, setur og sýningar
  • Golfvelli, veiði, sundlaugar, reiðhjólaleigur og hestaleigur
  • Upplýsingamiðstöðvar, ferðaskrifstofur, sendiráð erlendra ríkja og ræðismenn

Skráning í grunninn er ferðaþjónustuaðilum að kostnaðarlausu

Hvar finn ég grunninn?

Upplýsingar úr grunninum eru m.a. birtar á landkynningarvefnum www.visiticeland.com og ferðavefnum www.ferdalag.is. Jafnframt birtast upplýsingar á öllum landshlutavefjum markaðsstofanna á landsbyggðinni. Þá er hægt að skoða hann á kortasjá með landupplýsingum Ferðamálastofu.

Skráning í grunninn

Ferðaþjónustuaðilar geta fyllt út eyðublaðið hér að neðan til að óska eftir skráningu í grunninn.

Aðgangur fyrir skráða aðila

Fyrirtæki eða aðilar sem eru með skráningu geta fengið aðgang til að halda utan um og breyta sínum upplýsingum. Þeir sem hafa fengið frá okkur póst þess efnis og svarað ættu að hafa fengið staðfestingarpóst með upplýsingum næstu skref. Bendum einnig á leiðbeiningar til að vinna með grunninn.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 535-5500 eða ferdalag@ferdamalastofa.is