Fara í efni

Styrkir frá NATA

Flatey á Breiðafirði

Umsóknafrestur vegna næstu úthlutunar rennur út á miðnætti 19. febrúar 2023. Sótt er um á vef NATA á rafrænum eyðublöðum sem þar eru.

Styrkir til tvenns konar verkefna

Í samræmi við það sem samningur landanna kveður á um er hægt að sækja um styrki til tvenns konar verkefna:

  • Þróunar- og markaðsverkefna í ferðaþjónustu
  • Kynnis- og námsferða

Stjórn NATA mun árið 2024 líta sérstaklega til umsókna þar sem áhersla er á sjálfbærni og stafræna væðingu í ferðaþjónustu.

Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu

Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu í samstarfi landanna þriggja geta sótt um styrk. Skulu verkefnin fela í sér samstarf milli aðila í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Dæmi um verkefni sem NATA styrkir eru: 

  • Nýsköpunar- og vöruþróunarverkefni
  • Sameiginleg markaðssetningarverkefni
  • Þekkingarheimsóknir og miðlun gagnkvæmrar reynslu milli ferðaþjónustuaðila
  • Gæða- og umhverfismál innan ferðaþjónustunnar

Hámarksstyrkur verkefnis er 100 þúsund danskar krónur, eða að hámarki 50% kostnaðaráætlunar.

Styrkir vegna kynnis- og námsferða

Um er að ræða ferðastyrki til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 2.000 danskar krónur vegna ferða milli Íslands og Grænlands annars vegar og 1.000 danskar krónur vegna ferða á milli Íslands og Færeyja hins vegar. Ekki eru veittir styrkir vegna gistingar og uppihalds.

Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:

  • Skóla
  • Íþróttahópa
  • Tónlistarhópa
  • Annars menningarsamstarfs

Hvar er sótt um?

Allar umsóknir þurfa að berast með rafrænum hætti á þar til gerðum umsóknarblöðum sem finna má á vef NATA. Vefurinn og umsóknarformin eru bæði á dönsku og ensku.

Skilafrestur

Lokafrestur til að skila umsókn er á miðnætti (GMT) 19. febrúar 2024. Umsóknir eða fylgigögn sem berast eftir þann tíma verða ekki tekin gild. Niðurstaða stjórnar NATA um úthlutun mun liggja fyrir 22. mars 2024. Athugið að verkefni með áætluð verklok fyrir 22. mars 2024 eru ekki styrkhæf.

Næsti umsóknarfrestur 

Um er að ræða fyrri úthlutun af tveimur á árinu 2024. Áætlað er að umsóknarfrestur vegna seinni úthlutunar 2024 verði í ágúst 2024 en það verður auglýst sérstaklega síðar.

Nánari upplýsingar

Upplýsingar um fyrri úthlutanir NATA má sjá á hér.

Nánari upplýsingar gefur starfsmaður NATA, Erla Weihe Johannesen – nata@vinnuframi.fo