27.05.2010
Stefnumótun í ferðamálum á Íslandi var síðast unnin á árunum 2004-2005 og gilti fyrir árin 2006-2015 og er því enn í gildi. Í ljósi breyttrar stöðu taldi Iðnaðarráðherra mikilvægt að endurskoða stefnuna á árinu 2010. Hún var síðast endurskoðuð árið 2007.
Stýrihópur var skipaður í apríl 2010 og stefnt er að því að hann ljúki störfum í nóvember 2010. Ferðamálaráð er bakland stýrihópsins en gert er ráð fyrir víðtæku samráði við hagsmunaaðila.
Stýrihópinn skipa:Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, formaður stýrihópsinsSvanhildur Konráðsdóttir, formaður FerðamálaráðsErna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAFHelga Haraldsdóttir, skrifstofustjóri Iðnaðarráðuneyti
Starfsmaður stýrihópsins er Sigríður Ó. Kristjánsdóttir verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Upplýsingaöflun og vefsíðaUpplýsingaöflun og samráð vegna stefnumótunar í ferðaþjónustu er að hefjast. Upplýsingum verður aflað með viðtölum við hagsmunaaðila í ferðaþjónustu, stoðkerfi ferðaþjónustunnar og greinum sem tengjast ferðaþjónustu á einn eða annan hátt. Þá hefur verið opnuð vefsíða vegna verkefnisins og er slóðin á hana http://stefna.wordpress.com
Lesa meira
27.05.2010
Standbynews.com - Svíþjóð
Lesa meira
27.05.2010
Pros-du-tourisme.com - Frakkland (PDF)
Lesa meira
26.05.2010
Ekstra Bladet - Danmörk (PDF)
Lesa meira
26.05.2010
Umfjöllun og auglýsingar í breskum dagblöðum 24.-26. maí 2010 (PDF)
Lesa meira
26.05.2010
Berlingske Tidende - Danmörk
Lesa meira