Fara í efni

Viðhorf Íslendinga til ferðamanna og ferðaþjónustu

Rannsóknarverkefnið Viðhorf Íslendinga til ferðamanna og ferðaþjónustu er skilgreint í rannsóknaráætlun Ferðamálastofu og er liður í vöktun á viðhorfum heimamanna. Verkefnið er hluti af reglubundinni söfnun hins opinbera á samanburðarhæfum gögnum og greiningu á viðhorfum Íslendinga.

Rannsóknin hefur verið framkvæmd sem landskönnun árin 2014, 2017, 2019 og 2023, auk sem styttri kannanir voru framkvæmdar árin 2021 og 2022 fyrir Jafnvægisás ferðamála. Þess á milli hafa jafnframt verið gerðar tilviksrannsóknir á viðhorfum íbúa á nokkrum þéttbýlisstöðum.

Gögn úr rannsókninni eru nýtt fyrir mælikvarða Jafnvægisáss ferðamála og til að fylgjast með markmiði stjórnvalda um að landsmenn hafi jákvætt viðhorf til ferðaþjónustunnar. Þau nýtast jafnframt í alþjóðlegri tölfræði, svo sem við gerð sjálfbærnivísa aðildarlanda Ferðamálaráðs Evrópu (ETC).

Niðurstöður rannsókna eftir árum