Fara í efni

Atvikavaktin

Skráningarform sem heldur utan um slys, óhöpp og næratvik á einfaldan, samræmdan og gagnlegan hátt til að auka öryggi í ferðaþjónustu.

  • Atvikavaktin er notendum að kostnaðarlausu.
  • Atvikavaktin er hönnuð með þarfir ferðaþjónustufyrirtækja í huga – til að spara tíma, bæta yfirsýn og styrkja faglegt öryggisstarf.
  • Hvert fyrirtæki hefur eiginn aðgang að sínum gögnum sem enginn annar hefur aðgang að.
  • Atvikavaktin auðveldar fyrirtækjum sem bjóða ferðir og afþreyingu að sinna lögbundnum skyldum sínum um öryggisáætlanir og styður þannig við markviss og fagleg vinnubrögð í öryggismálum. 
  • Atvikavaktin er rekin af Ferðamálastofu og er liður í stefnu og áherslu stjórnvalda um aukið öryggi ferðamanna.



 

Virði fyrir fyrirtæki felst meðal annars í:

  • Aðgangi að eigin gögnum á einum stað – alltaf tiltækum þegar þörf krefur.
  • Betri yfirsýn yfir slys og óhöpp sem styður við áhættumat og ákvarðanatöku.
  • Tækifæri til að greina mynstur og grípa fyrr inn í áður en alvarleg atvik eiga sér stað.
  • Einfaldari og samræmdri skráningu í stafrænu, miðlægu kerfi.
Flest alvarleg slys eiga sér undanfara. Með skráningu næratvika er hægt að bregðast við áður en hættur þróast í slys.


Nýting gagna til að efla öryggi í ferðaþjónustu

  • Upplýsingar úr kerfinu eru einnig nýttar til að draga fram þróun, umfang og eðli slysa og óhappa í ferðaþjónustu á Íslandi.
  • Gögn sem eru unnin úr kerfinu í þessum tilgangi eru ekki rekjanleg til einstakra fyrirtækja eða einstaklinga.
  • Slík yfirsýn skapar mikilvægan grunn fyrir markvissar forvarnir, stefnumótun og aðgerðir til að efla öryggi í greininni.
Skráning atvika bætir yfirsýn yfir áskoranir í greininni sem skapar tækifæri til sameiginlegs lærdóms og markvissari forvarna í íslenskri ferðaþjónustu
  • Ferðaþjónustan er ein af mikilvægustu atvinnugreinum Íslands og þjónar árlega nær þremur milljónum ferðamanna. Til að viðhalda árangri greinarinnar þarf öryggi ferðamanna að vera í forgangi.
  • Kerfið er ekki ætlað til að finna sökudólga heldur að efla lærdóm, samvinnu og stöðugar umbætur.

Hvernig fæ ég aðgang?

Fyrirtæki skrá sig í Atvikavaktina með því að fylla út formið hér að neðan. Í framhaldinu verður starfsfólk frá Áhættustjórnun ehf. í sambandi varðandi innskráningu og nánari leiðbeiningar um næstu skref.

Nánari upplýsingar: atvik@ferdamalastofa.is 

 

Kynntu þér Atvikavaktina á 45 mínútum

Til að auðvelda fyrirtækjum að hefja notkun á Atvikavaktinni bjóðum við upp á stutt og hagnýt örnámskeið á netinu. Námskeiðin taka um 30 mínútur hvert og eru ætluð stjórnendum, öryggisfulltrúum, leiðsögumönnum og öðru starfsfólki sem kemur að skráningu atvika og næratvika í ferðaþjónustu.

Á námskeiðunum verður farið yfir:

  • Hvernig skráning atvika og næratvika fer fram.
  • Hvernig ferðaþjónustufyrirtæki geta nýtt mælaborð og gögn til að greina áhættu og efla öryggisstarf.
  • Helstu eiginleika kerfisins og góð ráð til að tryggja samræmda og gagnlega skráningu.

Hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin í notkun Atvikavaktarinnar eða vilt fá betri yfirsýn yfir möguleika kerfisins eru námskeiðin einföld leið til að hefjast handa.

Skráning á örnámskeið

30. september kl. 13-13:45 á Íslensku:
Atvikavaktin - Örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila

 

1. október kl 13-13:45 - Námskeið á ensku:
The Incident Guard in 45 Minutes – A Micro-Course for Tourism Operators