Fara í efni

World Travel Market 2018 - skráning

Íslandsstofa vekur athygli á að opnað hefur verið fyrir skráningar á ferðasýninguna World Travel Market 2018. World Travel Market er haldin árlega og er á meðal stærstu ferðasýninga í heimi. Á sýningunni býðst fyrirtækjum í ferðaþjónustu gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskipta¬samböndum en hún er einungis ætluð fagfólki í ferðaþjónustu (B2B).

Sýningin fer fram í ExCel sýningarhöllinni í London líkt og undanfarin ár og stendur yfir dagana 5.- 7. nóvember. Opnunartími sýningarinnar er frá 10-18 alla þrjá dagana.

Íslandsstofa sér um að skipuleggja þjóðarbás og mun bjóða upp á fundaraðstöðu þar. Pláss er takmarkað á básnum og eru áhugasamir því hvattir til að skrá sig hið fyrsta.

Áhugasamir eru beðnir um að fylla út skráningarform á vef Íslandsstofu fyrir 3. júlí nk. en þar er að finna upplýsingar um þátttökukostnað. Vinsamlega kynnið ykkur einnig reglur varðandi þátttöku á þjóðarbás Íslandsstofu.

Nánari upplýsingar veitir María Björk Gunnarsdóttir, maria@islandsstofa.is