Fara í efni

HITTUMST

Ferðasýningin HITTUMST verður haldin miðvikudaginn 6. maí frá kl. 13.00 til 16.00 í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar gefst áhugasömum tækifæri á að kynna sér vörur og þjónustu sem í boði er í ferðaþjónustunni á höfuðborgarsvæðinu.

Á HITTUMST munu um 70 aðilar í ferðaþjónustunni á höfuðborgarsvæðinu kynna sína starfsemi. Þetta er þriðja árið í röð sem sýningin er haldin og er það Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins sem stendur að HITTUMST.

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins hvetur öll í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu hvort sem er frá fyrirtækjum, stofnunum eða sveitarfélögum, að mæta og kynna sér það sem svæðið hefur upp á að bjóða. Sérstaklega er bent á að láta starfsfólk í ferðaþjónustu vita að það er velkomið á HITTUMST og vonar Markaðsstofan að aðilar sjái sér fært að hvetja framlínufólkið sitt til að mæta.

Allir sem mæta á HITTUMST geta skráð sig í lukkupott og átt möguleika á að vinna stórkostlega vinninga frá ferðaþjónustunni á höfuðborgarsvæðinu.