Ferðamenn á eigin vegum
Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sýnilegur á Íslandi. Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Vesturland, Höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Atburðurinn mun leiða til tímabundinnar fjölgunar ferðamanna innan þessara svæða og til aukinnar umferðar. Álag á innviði getur orðið mikið þar sem t.a.m. mikil umferð getur myndast skyndilega og hegðun fólks er ófyrirséð.
Mætið snemma, dveljið lengi og komið undirbúin.
Skipulag og öryggi
- Undirbúið ferðina í góðum tíma fyrir almyrkvadaginn.
- Aflið ykkur upplýsinga áður en lagt er af stað t.d. varðandi bílastæði og aðgengi.
- Veljið ykkur öruggan stað til að fylgjast með myrkvanum.
- Mætið tímanlega á svæðið þar sem þið hyggist fylgjast með myrkvanum.
- Virðið merkt svæði, leiðbeiningar starfsfólks og lokanir eða umferðartakmarkanir/stýringar sem kunna að vera í gildi.
- Ekki stöðva ökutæki á vegum eða í vegköntum til að fylgjast með almyrkvanum heldur leggja aðeins á merktum bílastæðum.
- Forðist að fara út fyrir stíga og skilgreind svæði.
- Hafið með ykkur mat, vatn og nauðsynlegan búnað t.d. skjólgóðan fatnað.
- Almyrkvann skal aðeins skoða með viðeigandi hlífðargleraugum.
Veður og væntingar
- Almyrkvi er náttúruatburður sem er háður veðri og skyggni.
- Þrátt fyrir góðan undirbúning er ekki hægt að ábyrgjast aðstæður eða útsýni.
- Vegna mögulegrar umferðaraukningar má gera ráð fyrir að ferðatími og tími á viðkomandi stað verði lengri en áætlað.
- Ferðamenn á almyrkvasvæðum eru hvattir til að vera sjálfbærir á almyrkvadegi, klæða sig eftir aðstæðum og hafa með sér nauðsynlegan búnað, vatn og nesti.
- Ferðamenn eru hvattir til að njóta upplifunarinnar á ábyrgan og öruggan hátt, óháð veðri.
Náttúruvernd og ábyrg ferðahegðun
Mikilvægt er að hafa í huga:
- Halda sig á merktum stígum og svæðum.
- Virða lokanir og aðgangstakmarkanir.
- Nota fyrirfram skilgreind bíla- og áningarstæði.
- Forðast að ganga á viðkvæmum gróðri, mosa eða lausum jarðvegi.
- Sýna varkárni á varasömum og viðkvæmum svæðum.
- Virða einkalönd og friðlýst svæði.
- Skilja ekkert eftir sig nema fótspor.
