Ferðaþjónustuaðilar sem koma með ferðamenn inn á almyrkvasvæði
Almyrkvinn þann 12. ágúst 2026 mun hafa áhrif á umferð, aðgengi og álag á vinsælum svæðum innan almyrkvaslóðarinnar. Mikilvægt er að ferðaþjónustuaðilar sem hyggjast ferðast með gesti inn á svæðið undirbúi sig vel og geri ráð fyrir auknu álagi og breyttum aðstæðum. Hér má finna helstu atriði sem hafa þarf í huga við skipulagningu, mönnun, öryggi, upplýsingagjöf og framkvæmd ferða.
Ferðaþjónustaðilar þurfa að fylgjast vel með þeim upplýsingum sem koma frá stjórnvöldum varðandi almyrkvann.
Gott er að hafa eftirfarandi í huga:
Mætið snemma, dveljið lengi og komið undirbúin.

Skipulag og undirbúningur
- Meta hvernig almyrkvinn gæti haft áhrif á starfsemina mína.
- Greina líklegar sviðsmyndir (aukinn fjöldi gesta, umferð, veður).
- Uppfæra eða yfirfara öryggisáætlanir.
- Skilgreina ábyrgð og hlutverk starfsfólks á almyrkvadegi.
Ferðaþjónustuaðilar þurfa að vera sjálfbjarga og vera búnir að huga að:
- Hvar eigi að borða (bóka borð).
- Hafa nægar drykkjarbyrgðir og nesti.
- Vera búnir að ganga frá og taka frá stað fyrir hópinn til þess að njóta almyrkvans.
- Vera búnir að ganga frá bókun á gistingu ef svo ber undir.
- Kynna sér þær umferðastýringar og lokanir sem verða gefnar út.
- Gera ráð fyrir miklum umferðatöfum.
Starfsfólk og mönnun
- Meta þörf fyrir auka mönnun.
- Tryggja að starfsfólk hafi skýrar leiðbeiningar og viti hvar á að leita að upplýsingum.
- Tryggja að starfsfólk hafi upplýsingar um viðbragðsaðila á svæðinu.
- Gera starfsfólk meðvitað um möguleg álagssvæði og áhættur.
- Útbúa einfaldar leiðbeiningar til starfsfólks um samskipti við gesti.
Öryggi gesta
- Meta hættu vegna umferðar, sérstaklega með tilliti til fótgangandi gesta.
- Greina varasöm eða viðkvæm svæði.
- Huga að veðri, skyggni og breytilegum aðstæðum.
- Hvetja gesti til að vera sjálfbærir (klæðnaður, matur, vatn).
- Upplýsa um notkun viðeigandi sólgleraugna til að horfa á almyrkvann.
- Tryggja að aðgengi sé að hreinlætisaðstöðu.
Umferð og aðgengi
- Kynna sér sameiginleg kort og leiðbeiningar um umferð.
- Vita hvar má leggja og hvar ekki.
- Forðast að beina gestum á svæði sem þola illa álag.
- Samræma skilaboð við nágrannaaðila, sveitarfélög og landeigendur.
Upplýsingagjöf
- Tryggja að upplýsingar séu skýrar, einfaldar og samræmdar.
- Forðast að lofa aðstæðum sem ekki er hægt að tryggja (t.d. skyggni, veður).
- Upplýsa gesti um mögulegar tafir, takmarkanir eða lokanir.
- Nota áreiðanlegar leiðir til upplýsingagjafar (vefsíður, móttaka, skilti).
- Styðjast við og nýta upplýsingar frá viðeigandi landshlutum.
Samskipti og væntingastjórnun
- Undirbúa starfsfólk fyrir vonbrigði eða óánægju gesta.
- Halda ró, sýna skilning og veita skýrar upplýsingar.
- Beina gestum áfram á öruggan og ábyrgan hátt.
- Muna að upplifun gesta ræðst oft af samskiptum, ekki aðstæðum.