Fara í efni

Almyrkvi

Þann 12. ágúst 2026 mun einstakur náttúruatburður eiga sér stað þegar almyrkvi á sólu verður sýnilegur frá Íslandi. Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Vesturland, Höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga og mun atburðurinn án efa vekja mikla athygli bæði innanlands og erlendis. Búast má við tímabundinni fjölgun ferðamanna, aukinni umferð og auknu álagi á innviði á þeim svæðum sem verða innan almyrkvaslóðarinnar.

Almyrkvi er sjaldgæf og eftirminnileg upplifun sem gefur okkur einstakt tækifæri til að upplifa náttúruna á óvenjulegan hátt. Til að tryggja að dagurinn verði öruggur og ánægjulegur fyrir alla skiptir samvinna og góð upplýsingagjöf miklu máli. Með samstilltu átaki er markmiðið að skapa jákvæða upplifun fyrir íbúa og gesti, á sama tíma og gætt er að öryggi fólks og verndun náttúrunnar.

Hér fyrir neðan má finna hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar fyrir ferðaþjónustuaðila og gesti hvernig best sé að hátta undirbúningi. Markmiðið er að styðja ferðaþjónustuaðila og hagaðila við undirbúning og framkvæmd á almyrkvadeginum með áherslu á:

  • Öryggi gesta
  • Samræmda upplýsingagjöf
  • Ábyrga nýtingu innviða
  • Ábyrga umgengni í náttúrunni
  • Fagleg samskipti við gesti við ólíkar aðstæður

Leiðbeiningarnar eru ekki tæmandi heldur eiga að vera verkfæri og stuðningur sem aðilar geta aðlagað að sínu fyrirtæki eða aðstæðum. Þetta eru lifandi upplýsingar og munu uppfærast eftir þörfum.

Almyrkvi er einstakur atburður. Jákvæð upplifun gesta og íbúa er á ábyrgð okkar allra.