Fara í efni

Ferðaþjónustuaðilar sem starfa á almyrkvasvæði

Ferðaþjónustuaðilar sem starfa á almyrkvasvæði

Ferðaþjónustuaðilar eru afar mikilvægir þegar kemur að því að veita áreiðanlegar upplýsingar til gesta. Þeir eru oftar en ekki fyrstu aðilarnir sem gesturinn hefur samskipti við þegar komið er til landsins eða á ákveðinn stað. Þetta getur verið starfsfólk upplýsingamiðstöðva, leiðsögumenn, starfsfólk á gististöðum og framlínustarfsfólk á veitingastöðum svo einhverjir séu nefndir.

Mikilvægt er að aðilar sem starfa á almyrkvasvæði undirbúi sig og starfsfólk sitt vel fyrir aukinn fjölda gesta og ófyrirsjáanlegar aðstæður sem geta skapast. Góð upplýsingagjöf, skýrt verklag og samhæfing við viðbragðs- og þjónustuaðila á svæðinu geta skipt sköpum til að tryggja öryggi, greiða umferð og jákvæða upplifun gesta og íbúa. Undirbúningur þarf m.a. að taka mið af auknu álagi á samgöngur, þjónustu og vinsæla áfangastaði, sem og mikilvægi þess að vernda náttúru og innviði svæðanna.

Skipulag og undirbúningur

  • Meta hvernig almyrkvinn gæti haft áhrif á starfsemi fyrirtækisins.
  • Kynna sér stöðu sólar og hvernig almyrkvinn sést frá starfsstöð.
  • Greina líklegar sviðsmyndir (aukinn fjöldi gesta, umferð, veður).
  • Uppfæra eða yfirfara öryggisáætlanir með tilliti til þessa atburðar.
  • Skilgreina ábyrgð og hlutverk starfsfólks á almyrkvadegi.
  • Fara yfir og tryggja vöruframboð.
  • Kynna sér þær umferðastýringar og lokanir sem verða gefnar út.
  • Kynna sér viðbragð og útsýnisstaði í nágrenninu.
  • Gera ráð fyrir miklum umferðatöfum.
  • Fylgjast vel með þeim upplýsingum sem koma frá stjórnvöldum varðandi almyrkvann.

Kjálkafjörður. Mynd Tamara Bitter á Unsplash

Starfsfólk og mönnun

  • Meta þörf fyrir auka mönnun.
  • Tryggja að starfsfólk hafi skýrar leiðbeiningar og viti hvar á að leita að upplýsingum.
  • Gera starfsfólk meðvitað um möguleg álagssvæði og áhættur.
  • Útbúa einfaldar leiðbeiningar til starfsfólks um samskipti við gesti.
  • Tryggja að vaktaskipti séu í góðum tíma fyrir eða eftir almyrkvann.

Öryggi gesta

  • Meta hættu vegna umferðar sérstaklega með tilliti til fótgangandi gesta.
  • Greina varasöm eða viðkvæm svæði í nágrenninu.
  • Huga að veðri, skyggni og breytilegum aðstæðum.
  • Hvetja gesti til að vera sjálfbærir (klæðnaður, matur, vatn).
  • Upplýsa um notkun viðeigandi sólgleraugna til að horfa á almyrkvann.

Upplýsingagjöf til gesta

  • Upplýsa á miðlum fyrirtækisins um hvernig almyrkvinn sést frá starfsstöðinni.
  • Tryggja að upplýsingar séu skýrar, einfaldar og samræmdar.
  • Forðast að lofa aðstæðum sem ekki er hægt að tryggja (t.d. skyggni, veður).
  • Upplýsa gesti um mögulegar tafir, takmarkanir eða lokanir.
  • Nota áreiðanlegar leiðir til upplýsingagjafar (vefsíður, móttaka, skilti).
  • Styðjast við og nýta upplýsingar frá viðeigandi landshlutum.

Samskipti og væntingastjórnun

  • Undirbúa starfsfólk fyrir vonbrigði eða óánægju gesta.
  • Halda ró, sýna skilning og veita skýrar upplýsingar.
  • Beina gestum áfram á öruggan og ábyrgan hátt.
  • Muna að upplifun gesta ræðst oft af samskiptum, ekki aðstæðum.

Umferð og aðgengi

  • Kynna sér sameiginleg kort og leiðbeiningar um umferð.
  • Vita hvar má leggja og hvar ekki.
  • Forðast að beina gestum á svæði sem þola illa álag.
  • Samræma skilaboð við nágrannaaðila, sveitarfélög og landeigendur.