Íbúar á almyrkvasvæði
Öryggi, gestrisni og samvinna í tengslum við almyrkva á sólu 12. ágúst 2026
Þann 12. ágúst 2026 mun almyrkvi á sólu sjást frá Íslandi og víða um land mun fjöldi gesta safnast saman til að upplifa einstakan náttúruviðburð. Fyrir heimamenn á almyrkvasvæðum felst í þessu bæði áskorun og sérstakt tækifæri. Íbúar eru að mörgu leyti gestgjafar þessa viðburðar og mörgum mun verða minnisstætt hversu vel var tekið á móti þeim.
Það eru forréttindi að geta upplifað almyrkva frá eigin heimili eða nærumhverfi. Með góðum undirbúningi, yfirvegun og samvinnu getum við öll stuðlað að öruggri og jákvæðri upplifun fyrir bæði heimamenn og gesti.
Gerið ráð fyrir auknum umgangi og umferð
Á mörgum svæðum má búast við mun meiri umferð en venjulega, bæði bílaumferð og fótgangandi. Mikilvægt er að:
- Gera ráð fyrir lengri ferðatíma og mögulegum töfum.
- Aka af sérstakri varúð, sérstaklega þar sem fólk getur verið óvant íslenskum aðstæðum.
- Forðast að leggja ökutækjum í vegkanti eða þannig að þau hindri neyðarleiðir, innkeyrslur eða umferð.
Hugið að eigin öryggi fyrst
Þó margir vilji upplifa myrkvann utandyra er mikilvægt að velja öruggan stað:
- Haldið ykkur frá hættulegum svæðum eins og klettabrúnum, fjörum með öldugangi, ám, jöklum eða svæðum þar sem hætta getur skapast í myrkri.
- Gætið sérstaklega að börnum og eldri borgurum.
- Klæðist eftir veðri og gerið ráð fyrir köldu veðri jafnvel á sumri, því að það kólnar á meðan á almyrkvanum stendur.
Verndið augun
Það er hættulegt að horfa beint í sólina án viðurkenndra sólmyrkvagleraugna eða sérstaks búnaðar.
- Notið eingöngu viðurkennd sólmyrkvagleraugu.
- Venjuleg sólgleraugu duga ekki.
- Fylgist vel með börnum og tryggið að þau noti réttan búnað.
Sýnum þolinmæði og gestrisni
Margir gestir verða á ókunnum slóðum og kunna að leita upplýsinga eða aðstoðar.
- Sýnið tillitssemi og hjálpsemi þegar kostur er.
- Ef þið sjáið hættulega hegðun eða fólk í vandræðum er mikilvægt að bregðast rólega við og kalla eftir aðstoð ef þörf krefur.
- Minnið gesti vinsamlega á að ganga vel um náttúruna og fylgja merktum leiðum.
Verum undirbúin fyrir breytingar á aðstæðum
Veður á Íslandi getur breyst hratt og aðstæður geta orðið krefjandi með litlum fyrirvara.
- Fylgist með veðurspám og upplýsingum frá yfirvöldum.
- Forðist óþarfa ferðalög ef umferðarþungi eða veður skapa hættu.
- Fylgist með upplýsingum frá sveitarfélögum, lögreglu, Almannavörnum og öðrum opinberum aðilum.
