Fara í efni

Ferðasýningin FITUR á Spáni

Íslandsstofa vekur athygli á að opnað hefur verið fyrir skráningu á ferðasýninguna FITUR sem stendur yfir dagana 23.- 27. janúar 2019 í Madrid á Spáni. Sýningin er haldin árlega og er stærsta ferðasýningin á spænska markaðinum. Á síðasta ári sóttu hana um 250 þúsund manns, þar af um 140 þúsund ferðaþjónustuaðilar.

Á FITUR býðst fyrirtækjum í ferðaþjónustu gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskipta¬samböndum. Sýningin er tvískipt; fyrri hluti hennar 23.- 25. janúar er fyrir fagfólk (B2B) en dagana 26. og 27. janúar er sýningin einnig opin almenningi (B2C).

Ísland verður, eins og á FITUR 2018 með þjóðarbás á sérstöku Evrópusvæði og sýnir þar undir merkjum Inspired by Iceland.

Áhugasamir um þátttöku eru beðnir að fylla út skráningarform á vef Íslandsstofu fyrir 6. júlí nk.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ragnarsdóttir, sigridur@islandsstofa.is eða í s. 897 7950.
Sjá einnig vefsíðu FITUR.