Er leiðin greið? Málþing um aðgengi og aðferðafræði algildrar hönnunar
Aðgengishópur Öryrkjabandalags Íslands, Blindrafélagið, Verkís hf., Átak- félag fólks með þroskahömlun og Reykjavíkurborg bjóða til málþings um algilda hönnun utandyra, í þéttbýli og á ferðamannastöðum.
Málþingið er haldið í samvinnu við Umhverfisráðuneytið, Ferðamálastofu, Mannvirkjastofnun og Vegagerðina.
- Tími: föstudagurinn 10. mars, kl. 9:00-13:00
- Staður: Grand Hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík
- Skráning (fyrir 3. mars)
- Dagskrá
Málþingið er haldið í tengslum við alþjóðlegan dag aðgengis sem er 11. mars. Fjallað verður um aðgengismál innan byggðar og á ferðamannastöðum.
Kynnt verður ný rannsóknarskýrsla sem unnin var af verkfræðistofunni Verkís, en tilgangur verkefnisins var að gera ítarlega úttekt á hönnunarreglum og stöðlum sem lúta að algildri hönnun í útiumhverfi í Svíþjóð, Danmörku og Noregi og bera saman við íslenskar reglur og staðla.
Brugðið verður ljósi á aðgengisþarfir fatlaðs fólks í almenningsrými innan byggðar og af hverju algild hönnun er mikilvæg við skipulagningu gatna og torga.
Kynntur verður leiðbeiningarbæklingur sem aðgengishópur ÖBÍ gefur út á málþinginu.
Gerð verður grein fyrir stöðu aðgengismála á ferðamannastöðum á Íslandi. Sagt verður frá niðurstöðum úr ferð aðgengishóps Átaks – félags fólks með þroskahömlun, sem birtar voru í nýlegri skýrslu.
Veitt verður aðgengisviðurkenning Reykjavíkurborgar í fyrsta sinn.
Fulltrúar frá Ferðamálastofu, Mannvirkjastofnun og Vegagerðinni halda erindi á málþinginu og Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra flytur ávarp.
Málþingið er ókeypis og öllum opið. Boðið verður upp á veitingar í hádeginu.
Rit- og táknmálstúlkun er í boði – óska þarf eftir túlkun við skráningu á málþingi