Fara í efni

Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar fimmtudaginn 3. maí 2018 kl 10-12. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA á Akureyri.

Dagskrá aðalfundar samkvæmt skipulagsskrá:

Skýrsla stjórnar
Afgreiðsla ársreiknings
Afgreiðsla fjárhagsáætlunar
Stjórnarkjör
Kjör endurskoðenda
Starfshættir stjórnar
Önnur mál

Stjórnarmenn eru kosnir á aðalfundi stofnunarinnar. Stjórn stofnunarinnar er skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Miða skal við að tveir stjórnarmenn og einn varamaður komi af Norðurlandi vestra og þrír stjórnarmenn og einn til vara frá Norðurlandi eystra. Stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn. Varamenn eru kosnir til eins árs í senn. Annað hvert ár skal kosið um tvo stjórnarmenn og er það raunin í ár og hitt árið um þrjá stjórnarmenn.

Á fundinum verður kosið um stjórnarsæti Sigríðar Káradóttur(NV) og Sigríðar Maríu Róbertsdóttur(NA) þar sem tveggja ára kjörtímabili þeirra er að ljúka. Einnig er kosið um sæti varastjórnarmannanna Þórdísar Bjarnadóttur(NA) og Tómasar Árdal(NV). Aðrir stjórnarmenn eru Unnur Valborg Hilmarsdóttir, formaður(NV), Arngrímur Agnarsson(NA) og Edda Hrund Guðmundsdóttir Skagfield(NA).

Framboð frá samstarfsfyrirtækjum til stjórnar þurfa að koma fram í síðasta lagi fyrir upphaf aðalfundar og eru áhugasamir beðnir að tilkynna framboð til framkvæmdastjóra.

Á aðalfundi fer hvert samstarfsfyrirtæki Markaðsstofunnar með atkvæði samkvæmt sínum gjaldflokki, 1 atkvæði fyrir lægsta flokk, 2 atkvæði fyrir næstlægsta flokk og svo framvegis upp í 5 atkvæði fyrir efsta gjaldflokk. Skilyrði þess að samstarfsfélög Markaðsstofu Norðurlands geti nýtt atkvæði sín á aðalfundi er að þau séu skuldlaus við Markaðsstofu Norðurlands.

Skráning á aðalfund fer fram hér fyrir neðan.

https://www.northiceland.is/is/markadsstofan/frettir-af-innra-starfi/skraning-a-adalfund

Nánari upplýsingar um MN er að finna hér http://www.nordurland.is/is/markadsstofan/frettir-af-innra-starfi

Skipulagsskrá MN má sjá hér www.nordurland.is/static/files/PDF/Starfsemi/markadsstofanordurlands-skipulagsskra-20.mai14.pdf

Staðfest breyting frá Sýslumanninum á Sauðárkróki v/ Markaðsstofu Norðurlands 20.06.2014 má sjá hér https://www.northiceland.is/static/files/PDF/Starfsemi/auglysing-breyting-markadsstofa-nordurlands.pdf