Fara í efni

Ábyrg ferðaþjónusta - uppskeruhátíð

Í byrjun þessa árs skrifuðu rúmlega 300 fyrirtæki undir yfirlýsingu um Ábyrga ferðaþjónustu. Að viðstöddum forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, lofuðu stjórnendur fyrirtækjanna að setja sér skrifileg markmið fyrir árslok um umhverfis- og öryggismál, réttindi starfsfólks og jákvæð áhrif á nærsamfélagið.

Þann 7. desember verður uppskeruhátíð verkefnisins á Hótel Natura og þá bjóðum við fyrirtækjum að sýna og segja frá þeim fjölbreyttu verkefnum sem þau hafa hrint í framkvæmd í tengslum við Ábyrga ferðaþjónustu. Við munum auk þess kynna lista yfir þau fyrirtæki sem staðið hafa við yfirlýsinguna og birt markmið sín.

Tími: 14.30-17.00
Staður: Icelandair Hotel Natura

14.30 Ávarp frá forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni sem er verndari verkefnisins 

14.40 Aðalræðumaður: Bruno Bisig, CEO of Kotiki Reisen: Why is Resonsible Tourism important for Iceland? 

15:10 Þrjú íslensk fyrirtæki kynna hvernig þau hafa innleitt ábyrga ferðaþjónustu í sinn rekstur. 

15:40 Kaffi og tengslanet - kynningar frá fyrirtækjum 

16:00 Samræðustofa 
- Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar 
- Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu 
- Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands
- Kristjana Milla Snorradóttir, verkefnastjóri hjá Nordic Visitor

Fyrirtækjum sem taka þátt í ábyrgri ferðaþjónustu gefst kostur á því annarsvegar að vera með 7mín kynningu á fyrirtækinu sínu og markmiðum og hinsvegar að kynna markmið sín með skjákynningum sem sýndar verða á meðan á hátíðinni stendur og í kaffihléi. Skráning fyrir hvorutveggja fer fram hér.
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSdt97BTso8Hya0P-bGtOVGyTYQS4xMI45dfGnLF4qadbfoamA/viewform

Skráning á Uppskeruhátíðina fer fram hér.https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSdt97BTso8Hya0P-bGtOVGyTYQS4xMI45dfGnLF4qadbfoamA/viewform