Fara í efni

Kortlagning auðlinda ferðaþjónustunnar - Verkefnisskýrsla 2014-2015

Nánari upplýsingar
Titill Kortlagning auðlinda ferðaþjónustunnar - Verkefnisskýrsla 2014-2015
Lýsing

Ferðamálastofa birti í júlí 2015 gögn sem söfnuðust í hinu viðamikla verkefni „Kortlagning auðlinda íslenskrar ferðaþjónustu“ en það er meðal aðgerða sem kveðið er á um í Ferðamálaáætlun 2011-2020. Um er að ræða metnaðarfullt verkefni sem nýtist við þróun og uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu, bæði opinberum stofnunum sem og einkaaðilum. Hér er að vinna skýrslu um verkefnið fyrir árin 2014 og 2015.

Hvar liggja tækifærin?

Verkefnið miðar að því að kortleggja, með aðstoð landfræðilegra upplýsingakerfa, auðlindir ferðaþjónustu og helstu innviði svæða í samstarfi við heimafólk og greina þannig með myndrænum hætti hvar auðlindir ferðaþjónustunnar og tækifæri liggja til framtíðar. Alta ehf. vann verkið á grundvelli útboðs sem efnt var til í samvinnu við Ríkiskaup vorið 2014 en Rannsóknamiðstöð ferðamála hafði áður unnið forverkefni sem tók til átta sveitarfélaga á Suðurlandi. Þá hafa Landmælingar Íslands einnig setið í stýrihóp verkefnisins og veitt ráðgjöf.

Kortlagning staða

Meginmarkmið verkefnisins er að kortleggja staði þar sem upplifa má staðbundna og sérstaka eiginleika í náttúrufari eða menningu. Í gögnum um hvern stað kemur fram í hvaða flokka upplifanir á staðnum falla (fjörur, fossar, gil og gljúfur, o.s.frv.), mat á aðdráttarafli staðarins auk upplýsinga um aðgengi, aðstöðu o.fl. Skráningin gefur áhugaverðar vísbendingar um sérkenni svæða sem hugsanlega má nýta og/eða ástæða er til að vernda.

Matið í höndum heimafólks

Til að tryggja gæði gagnanna voru sveitarfélög og aðrir hagsmunaaðilar út um landið beðnir um að tilnefna samráðsfulltrúa sem komu að skráningu, mati og yfirferð upplýsinga. Hlutverk fulltrúa var að meta skráða staði út frá aðgengi og aðdráttarafli, lagfæra staðsetningu, fara yfir skráðar upplýsingar um hvern stað og benda á staði sem ekki voru þegar skráðir. Matið fór fram í gegnum sérstakt vefviðmót. Komu um 350 manns um allt land að þessari vinnu sumarið 2014 og fá sérstakt þakklæti fyrir framlag sitt.

Vefsjá með gögnum

Hér að neðan er hlekkur á vefsjá með gögnunum. Birtingu upplýsinga um hluta staðanna var frestað, t.d. staða í þéttbýli og þeirra sem taldir eru viðkvæmir og þola illa ágang.

Kortlagning auðlinda ferðaþjónustunnar - vefsjá

 

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Oddný Þóra Óladóttir
Nafn Halldór Arinbjarnarson
Nafn Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Flokkun
Flokkur Stefnumótun og skipulag
Útgáfuár 2015
Útgefandi Ferðamálastofa
Leitarorð kortlagning, auðlindir, kortagrunnur, skipulag, alta, viðkomustaðir, áfangastaðir, íslendingasögur, kort, kortagögn, vefsjá, gis