Fara í efni

UFS Tourism ehf.

Ferðaskrifstofuleyfi félagsins UFS Tourism ehf, kt. 520314-0750, Tjarnarbraut 24, 260 Reykjanesbæ hefur verið fellt úr gildi þar sem félagið hefur verið úrskurðað gjaldþrota.

Starfsemi ferðaskrifstofunnar var tryggingaskyld vegna sölu pakkaferðar og samtengdrar ferðatilhögunar samkvæmt VII. kafla laga nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun.

Samkvæmt 25. gr. er tryggingunni ætlað að endurgreiða fé sem viðskiptavinur hefur greitt vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar.

Með vísan til 27. gr. er hér með skorað á þá viðskiptavini fyrirtækisins, sem telja sig eiga kröfu á hendur því, sbr. ofangreint, að leggja fram skriflegar kröfulýsingar í tryggingarféð fyrir 4. maí nk.

Kröfulýsingu skal senda inn rafrænt í gegnum Ísland.is. Undir þjónustuflokknum Vegabréf, ferðalög og búseta erlendis er að finna sérstakt form sem þarf að fylla út. Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu. Ef kröfuhafi hefur ekki íslenska kennitölu skal senda formlega kröfu á krofur@ferdamalastofa.is. Nánari upplýsingar á ensku má finna á vef Ferðamálastofu.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 535 5500, á netspjalli stofnunarinnar eða á netfanginu krofur@ferdamalastofa.is

Ferðamálastofa