Fara í efni

Atvikavaktin - fleiri örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila

Ferðamálastofa hefur staðið fyrir örnámskeiðum síðustu vikur til þess að kenna hagaðilum í ferðaþjónustu hvernig nýta megi Atvikavaktina – miðlægt atvikaskráningarkerfi fyrir ferðaþjónustuna á sem bestan hátt. Kerfið er fyrirtækjum að kostnaðarlausu og gerir þeim kleift að skrá slys, óhöpp og næratvik á einfaldan og samræmdan hátt.

Námskeiðin hafa verið einstaklega vel sótt og því hefur Ferðamálastofa ákveðið að bæta við nokkrum dagsetningum.

Með þátttöku í Atvikavaktinni fær fyrirtækið meðal annars:

  • Betri yfirsýn yfir atvik í eigin starfsemi.
  • Aðgang að gagnvirku mælaborði sem styður áhættumat og ákvarðanatöku.
  • Tækifæri til að greina mynstur og bregðast fyrr við áhættu.
  • Verkfæri sem styður við lögbundnar kröfur um öryggisáætlanir og stöðugar umbætur.
  • Tækifæri til að leggja sitt af mörkum til sameiginlegs lærdóms og aukins öryggis í íslenskri ferðaþjónustu.

Flest alvarleg slys eiga sér undanfara. Með því að skrá næratvik og læra af reynslunni getum við saman byggt upp enn sterkari öryggismenningu í greininni.

Atvikavaktin á 45 mínútum

Til að auðvelda fyrirtækjum að hefja notkun bjóðum við nú upp á þrjú stutt örnámskeið til viðbótar (45 mínútur hvert) þar sem farið er yfir:

  • Hvernig fyrirtæki skrá atvik og næratvik í Atvikavaktina.
  • Hvernig hægt er að nýta mælaborð og gögn til umbóta og forvarna.
  • Hvernig Atvikavaktin getur stutt við öryggisáætlanir og daglegt öryggisstarf fyrirtækja.

Námskeiðin eru sérstaklega ætluð stjórnendum og millistjórnendum.

Skráning á námskeið - nýjar dagsetningar:


14. júlí kl 19:30 – 20:15 Atvikavaktin - Örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila

15. júlí kl 19:30 – 20:15 Á ENSKU The Incident Guard in 45 Minutes – A Micro-Course for Tourism Operators

 


Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur Atvikavaktina og taka þátt í þeirri vegferð að gera íslenska ferðaþjónustu enn öruggari fyrir gesti og starfsfólk.