Fara í efni

Íslensk ferðaþjónusta - greining Íslandsbanka

Nánari upplýsingar
Titill Íslensk ferðaþjónusta - greining Íslandsbanka
Lýsing

Forsíða skýrsluÍslandsbanki gefur nú út skýrslu um íslenska ferðaþjónustu í fjórða sinn. Er skýrslunni ætlað að gefa aðilum innsýn í þróun greinarinnar og stöðu hennar hverju sinni. Íslandsbanki vill með útgáfunni leggja sitt af mörkum við að upplýsa um stöðu ferðaþjónustunnar.

Í kynningu á skýrslunni segir: "Íslensk ferðaþjónusta mun á líðandi ári halda áfram að auka umfang sitt í hagkerfinu og styrkjast sem máttarstólpi í íslensku samfélagi. Vöxtur ferðaþjónustunnar hefur krafist mikilla fjárfestinga sem hefur reynst sjálfstæð uppspretta hagvaxtar og aukinnar atvinnu hér á landi. Engu að síður hefur fjárfesting í gistiþjónustu ekki mætt eftirspurn ferðamanna eftir gistingu að öllu leyti. Hefur það leitt til þess að nýting hótelherbergja er því með hæsta móti hér á landi í alþjóðlegum samanburði og gisting í Reykjavík orðin ein sú dýrasta á Norðurlöndum. Þá sýna tölurnar að deilihagkerfið hefur leikið mikilvægt hlutverk í að gera þeim fjölda ferðamanna sem hingað hefur ferðast á undanförnum árum kleift að dvelja á landinu. Nú er svo komið að deilihagkerfið stefnir í að verða umfangsmeira en öll hótel á landinu til samans þegar kemur að gistingu ferðamanna hér á landi."

Áhugaverðar staðreyndir úr skýrslunni:

  • Langstærstur hluti ferðamanna á Íslandi kemur frá Bandaríkjunum – þeir eyða líka mest allra ferðamanna.
  • Ísland er einn dýrasti ferðamannastaður heims – verðlag er að meðaltali 28% hærra hér en á hinum Norðurlöndunum.
  • Airbnb velti í kringum 20 milljörðum króna árið 2017 – það er 109% aukning frá árinu áður.
  • Árið 2018 munu að öllum líkindum meira en 570 milljarðar króna rata í ríkiskassann sem beinar gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu – það er um 10% tekjuvöxtur.
  • Ísland er í 25. sæti yfir samkeppnishæfustu þjóðirnar í ferðaþjónustu – þá eru vinnumarkaður og hæfni vinnuafls metið það samkeppnishæfasta í heiminum.
  • Airbnb nálgast hótelin óðfluga hér á landi – nú þegar er rekstur Airbnb á Íslandi orðinn þrisvar sinnum umfangsmeiri en öll gistiheimili landsins.
Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Umfang og áhrif
Útgáfuár 2018
Útgefandi Íslandsbanki
Leitarorð afkoma, rekstur, fjárfesting, íslandsbanki, tekjur, hagnaður, gjaldeyristekjur