Fara í efni

Economic Effects of Tourism in Þingeyjarsýslur - Analysis at the sub-national level in Iceland

Nánari upplýsingar
Titill Economic Effects of Tourism in Þingeyjarsýslur - Analysis at the sub-national level in Iceland
Lýsing

Skýrsla sem Lilja B. Rögnvaldsdóttir vann um efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslum. Um er að ræða greiningu á svæðisbundnum efnahagsáhrifum ferðaþjónustu og m.a. unnið með hliðsjón af alþjóðlegri forskrift sk. ferðaþjónustureikninga, sem Rannsóknamiðstöð ferðamála hefur unnið á landsvísu með Hagstofu Íslands.

Vinna Lilju er fyrsta greining sinnar tegundar á áhrifum ferðaþjónustu á afmörkuðu svæði hérlendis og sýnir m.a. umfang atvinnugreinarinnar í Þingeyjarsýslum þar sem velta og þjónustukaup ferðaþjónustufyrirtækja innan svæðisins eru metin. Einnig koma fram tölur um fjölda ársverka í atvinnugreininni, launaveltu og stöðugildi sumar og vetur.

Lilja hefur unnið að verkefninu í þrjú ár. Upphaflega var til þess stofnað eftir frumkvæði Þekkingarnetsins og Lilju sjálfrar og endaði verkefnið sem samstarfsverkefni Rannsóknamiðstöðvar ferðamála, Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Húsavík og Þekkingarnets Þingeyinga.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir
Flokkun
Flokkur Umfang og áhrif
Útgáfuár 2016
Útgefandi Rannsóknamiðstöð ferðamála
ISBN 978-9935-437-45-7
Leitarorð svæðisbundin áhrif, hagræn áhrif, húsavík, þingeyjarsýsla, þingeyjarsýslur, þekkingarnet, rannsóknamiðstöð ferðamála, ferðaþjónustureikningar, umfang, áhrif, lilja, tekjur, afkoma, arður