Fara í efni

Tourist images of Iceland: A regional comparasion of tourism promotional material

Nánari upplýsingar
Titill Tourist images of Iceland: A regional comparasion of tourism promotional material
Lýsing

Í maí kom út hjá Rannsóknamiðstöð ferðamála skýrsla um ímynd Íslands í kynningarefni ferðaþjónustunnar. Skýrslan, sem er á ensku hefur titilinn Tourist images of Iceland: A regional comparasion of tourism promotional material. Í henni segir frá greiningu á myndnotkun í kynningarefni ferðaþjónustunnar bæði af hálfu hins opinbera (Íslandsstofa og markaðsstofur landshlutanna) sem og ferðaþjónustufyrirtækja. Vinnan er að hluta framhald greiningar sem framkvæmd var á vegum RMF árið 2011 þar sem myndefni norðlenskra markaðsaðila var til skoðunar.

Höfundur skýrslunnar Tourist images of Iceland er Dennis Hermans, meistaranemi í ferðamálafræðum við Wageninger háskóla í Hollandi, en skýrslan er hluti starfsnáms sem hann hefur sinnt við RMF undanfarna mánuði.

Í skýrslunni kemst Dennis að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að mest fari fyrir myndum af náttúru í kynningar- og markaðsefni allra svæða landsins, megi engu að síður finna umtalsverðan mun á áherslum. Þar geti til að mynda munað um hvort birtar eru myndir af ósnortinni náttúru eður ei, hvort áhersla sé á nærmyndir eða loftmyndir; friðsæl stöðuvötn og grónar fjallshlíðar eða kröftuga fossa og skriðjökla. Þá er ónefnt að nokkur munur kemur fram á notkun myndefnis umfram náttúru, svo sem tengdu menningu, listum, sögu og afþreyingu

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Dennis Hermans
Flokkun
Flokkur Ímynd og markaðsmál
Útgáfuár 2016
Útgefandi Rannsóknamiðstöð ferðaþjónustunnar
ISBN 978-9935-437-46-4
Leitarorð markaðsmál, kynningarmál, ímynd, kynningarefni, rannsóknamiðstöð ferðamála, markaðsstofur, Íslandsstofa, myndir, myndnotkun