Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu - Ferðaskrifstofuleyfi Nordibizz ehf. fellt úr gildi

12.08.2025

Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi Nordibizz ehf. nr. 2024-041 kt. 560919-0180, frá og með 12. ágúst 2025 þar sem leyfishafi uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir útgáfu leyfis.

Félagið hefur því ekki lengur heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða að milligangast sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni.

Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning vegna þess að leyfi félagsins var fellt niður af hálfu Ferðamálastofu.

Frestur til að senda kröfu í tryggingarfé er til og með 12. október 2025. Krafa þarf að berast innan kröfulýsingarfrests. Kröfur sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina. Hægt er að senda inn kröfur hérna: https://www.ferdamalastofa.is/is/krofur-vegna-nordibizz-ehf Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.

Sjá nánar á vef Ferðamálastofu, https://www.ferdamalastofa.is/is/leyfi/ferdaskrifstofur/leidbeiningar-til-ferdamanna-um-krofur-i-tryggingu-ferdaskrifstofu

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 535 5500 eða á netfanginu krofur@ferdamalastofa.is.