Áskorun um kröfulýsingu - Ferðaskrifstofuleyfi Ladventures ehf. fellt úr gildi
Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi Ladventures ehf. nr. 2024-030 kt. 431218-0540, frá og með 4. júlí 2025 þar sem leyfishafi uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir útgáfu leyfis.
Félagið hefur því ekki lengur heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða að milligangast sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni.
Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning vegna þess að leyfi félagsins var fellt niður af hálfu Ferðamálastofu.
Þeir ferðamenn sem kaupa ferðir af Ladventures ehf. eftir að ferðaskrifstofuleyfið er fellt niður eru ekki tryggðir af Ferðatryggingasjóð.
Frestur til að senda kröfu í tryggingarfé er til og með 7. september 2025. Krafa þarf að berast innan kröfulýsingarfrests. Kröfur sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina. Hægt er að senda inn kröfur hér.
Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.
Sjá nánar á vef Ferðamálastofu
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 535-5500 eða á netfanginu: krofur@ferdamalastofa.is