Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu - Ferðaskrifstofuleyfi Komdu út ehf. með hjáheitið Eagle golfferðir er fellt úr gildi

08.12.2025

Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi Komdu út ehf. með hjáheitið Eagle golfferðir nr. 2024-027 kt. Kt. 510724-2590, frá og með 8. desember 2025 þar sem félagið hefur lýst yfir ógjaldfærni og lagt fram gögn því til stuðnings.

Félagið hefur því ekki lengur heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða að milligangast sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni.

Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning vegna ógjaldfærni ferðaskrifstofu.

Frestur til að senda kröfu í Ferðatryggingasjóð er til og með 9. febrúar 2026. Krafa þarf að berast innan kröfulýsingarfrests. Kröfur sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina. Kröfur eru sendar í gegnum vefgátt á island.is.

Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.

Sjá nánari upplýsingar á vef Ferðamálastofu