Fara í efni

Sjálfbærnivottanir í ferðaþjónustu

Vottanir geta verið mikilvægur liður í að stuðla að ábyrgri og sjálfbærri starfsemi og markvissu gæðastarfi í ferðaþjónustu. Þær hjálpa fyrirtækjum að setja sér skýr markmið, vinna að stöðugum umbótum og sýna viðskiptavinum og samstarfsaðilum fram á árangur.

Áður en vottun er valin er mikilvægt að skoða hvaða vottun hentar starfseminni, markmiðum fyrirtækisins og þeim mörkuðum sem það starfar á.

Stór hluti þeirra vottana sem standa ferðaþjónustufyrirtækjum til boða leggur áherslu á umhverfismál og sjálfbærni. Slíkar vottanir byggja almennt á því að fyrirtæki vinni markvisst að því að draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar á umhverfið og bæta árangur sinn á sviði sjálfbærni.


Kröfur geta meðal annars náð til orku- og vatnsnotkunar, kolefnislosunar, úrgangs, innkaupa, stjórnunar og félagslegra þátta. Algengt er að fyrirtæki þurfi að setja sér markmið, fylgjast með og mæla árangur og vinna að stöðugum umbótum. Umfang og áherslur eru þó mismunandi eftir vottunum og tegund starfsemi.

Kröfur um að fyrirtæki geti sýnt með trúverðugum hætti fram á árangur sinn á sviði umhverfismála, sjálfbærni og gæða hafa aukist. Viðskiptavinir og samstarfsaðilar kalla í auknum mæli eftir staðfestingu á því að fyrirtæki starfi samkvæmt skilgreindum viðmiðum og þar geta viðurkenndar vottanir gegnt mikilvægu hlutverki.

Nýjar reglur Evrópusambandsins, svokölluð EmpCo-tilskipun, miða að því að styrkja neytendavernd og auðvelda neytendum að taka upplýstar ákvarðanir. Reglurnar herða meðal annars kröfur um notkun sjálfbærnimerkja og umhverfisfullyrðinga og leggja aukna áherslu á að fyrirtæki geti staðfest þær upplýsingar sem þau setja fram.


 Listi yfir nokkrar sjálfbærnivottanir

Hér að neðan er að finna lista yfir nokkrar sjálfbærnivottanir fyrir ferðaþjónustu. Listinn er ekki tæmandi en byggir meðal annars á þeim vottunum sem eru þekktar meðal íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja.

Yfirlitinu er ætlað að auðvelda fyrirtækjum að átta sig á þeim valkostum sem standa til boða og hvaða vottanir gætu hentað þeirra starfsemi.

Upplýsingarnar eru almenns eðlis og geta tekið breytingum. Fyrir nánari upplýsingar um einstakar vottanir, svo sem kröfur, umsóknar- og vottunarferli, úttektir og kostnað, er bent á vefsíður viðkomandi vottunarkerfa.


Vakinn

Vakinn er gæða- og umhverfisvottun fyrir íslenska ferðaþjónustu. Verkefninu er stýrt af Ferðamálastofu. Þau fyrirtæki sem taka þátt fá óháðan þriðja aðila til að skoða og taka út starfsemi og þjónustu fyrirtækisins, fá staðfestingu á því sem vel er gert og tækifæri til að bæta það sem betur má fara.

Sjá nánar Vakinn

Green Key

Hentar hótelum og öðrum gististöðum, auk tjaldsvæða, veitingastaða, ráðstefnustaða, safna og gestastofa.

Sjá nánar - Green Key

 


Earth Check

Hentar ferðaskipuleggjendum, hótelum og öðrum gististöðum, afþreyingarfyrirtækjum og annarri fjölbreyttri starfsemi í ferðaþjónustu.

Staðlar EarthCheck hafa hlotið viðurkenningu Alþjóðaráðsins um sjálfbæra ferðaþjónustu (GSTC). EarthCheck er einnig faggilt af GSTC til að votta áfangastaði.

Sjá nánar - Earth Check

 

 

Norræni Svanurinn - Umhverfisvottun

Hentar hótelum og öðrum gististöðum, veitingaþjónustu og ráðstefnustarfsemi.

Sjá nánar – Svanurinn

 




Travelife for Tour Operators & Travel Agents

Hentar ferðaskipuleggjendum og ferðaskrifstofum.

Sjá nánar - Travelife

 

Travelife for Accommodation

Hentar hótelum og öðrum gististöðum.

Sjá nánar - Travelife

 

 


Green Globe

Hentar hótelum og öðrum gististöðum, auk fjölbreyttrar annarrar starfsemi í ferðaþjónustu.

Sjá nánar – Green Globe

 

 

Blue Flag

Hentar ströndum, smábátahöfnum og ferðaþjónustubátum.

Sjá nánar - Blue Flag

 

 


B Corp

Almenn fyrirtækjavottun.

Sjá nánar – B Corp

 

 

EU Ecolabel - Umhverfismerki

Hentar fyrir gististaði og tjaldsvæði

Sjá nánar – EU Ecolabel

 


ISO Staðlar

  • ISO 9001 – Gæðastjórnunarkerfi
  • ISO 14001 – Umhverfisstjórnunarkerfi
  • ISO 21101 – Öryggisstjórnunarkerfi fyrir ævintýraferðaþjónustu
  • ISO 21103 – Upplýsingar til þátttakenda í ævintýraferðaþjónustu
  • ISO 20121 – Sjálfbær stjórnun viðburða
  • ISO 21401 – Sjálfbærnistjórnunarkerfi fyrir gististaði

Sjá nánar á vef Staðlaráðs og hér til að kaupa staðla.

 

Alþjóðaráðið um sjálfbæra ferðaþjónustu

Ferðamálastofa er aðili að The Global Sustainable Tourism Council (GSTC), Alþjóðaráðinu um sjálfbæra ferðaþjónustu.

Starfsemi GSTC er margvísleg og má m.a. nefna þróun og útgáfu staðla um sjálfbæra ferðaþjónustu, faggildingu fyrir vottunarstofur, mat og viðurkenningu á fyrirliggjandi stöðlum og vottunarkerfum (recognition), ráðgjöf fyrir stjórnvöld í stefnumótun, námskeið, fræðslu o.fl.