Fara í efni

Tölum um tölur! Náðu lengra á réttum forsendum

Tölum um tölur - hádegisfundur um fyrirliggjandi gögn í ferðaþjónustu og hvernig aðilar geta með sem árangursríkustum hætti nýtt þau í stefnumótun sinni og áætlanagerð. 

Á dagskrá fundarins verður m.a erindi frá ferðamálastjóra Skarphéðni Berg um fyrirliggjandi gögn, hvað er verið að mæla, fyrir hverja og hvernig er hægt að nýta það sem best til að ná samkeppnisæfni í rekstri. Erum við á brún hengiflugs í tækniframförum? Hver eru skilaboð bankanna til þeirra sem eru í fjárfestingum eða í leit að fjárfestum? Hvernig lítur framtíð ferðaþjónustu út séð frá fræðimönnum í greininni? 

Hvar: Hús ferðaklasans, Fiskislóð 10, 2.hæð.

Hvenær: Fimmtudagurinn 14.júní kl. 12:00-13:30

Fyrir hverja: Fyrirtæki í ferðaþjónustu og tengda aðila.

Verð: Ókeypis er fyrir aðildafélaga að Íslenska ferðaklasanum og íbúa í Húsi ferðaklasans á Fiskislóð 10. Aðrir greiða 3.900kr.  B

oðið verður uppá léttar hádegisveitingar frá Mathöll Granda  Mikilvægt er að skrá sig hér að neðan en takmarkaður sætafjöldi er í boði.

Skráning á fundinn