Fitur á Spáni
Íslandsstofa skipuleggur þátttöku á ferðasýningunni FITUR í Madrid á Spáni dagana 24.- 26. janúar 2024. Sýningin er haldin árlega og er stærsta ferðasýningin á spænska markaðnum. Á síðasta ári sóttu hana um 220.000 manns, þar af um 140.000 ferðaþjónustuaðilar.
Á FITUR býðst fyrirtækjum í ferðaþjónustu gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum. Sýningin er tvískipt; fyrri hluti hennar 24.- 26. janúar er fyrir fagfólk (B2B) en dagana 27. og 28. janúar er sýningin einnig opin almenningi (B2C).
Sýningin fer fram í IFEMA sýningarhöllinni í Madrid. Íslandsstofa skipuleggur þátttöku á sameiginlegum Norrænum þjóðarbás og sýnir undir merkjum Visit Iceland.
Verð: Kostnaður við þátttöku er að hámarki 550.000 á fyrirtæki.
Athugið að flug, gisting og annar ferðakostnaður er ekki innifalinn í verði.
Skráning: Áhugasöm um þátttöku eru beðin um að fylla út skráningarformið fyrir 1. nóvember nk.
Nánari upplýsingar veitir Oddný Arnarsdóttir, oddny@islandsstofa.is