Fara í efni

Kynning á Gott aðgengi í ferðaþjónustu - Fjarfundur 8. og 16.feb

Dagsetningar:   Miðvikudagur 8. febrúar 2023 eða fimmtudagur 16. febrúar
Tími:                      10:00-10:40
Staðsetning:       Fjarfundur

Ferðamálastofa býður upp á kynningu á hinu nýja verkfæri  Gott aðgengi sem sem nýverið hlaut hvatningarverðlaun ÖBÍ.

Fyrirtæki sem skrá sig á kynninguna fá leiðbeiningar um verkefnið, hvernig hægt er að bæta aðgengi fyrir fatlaða með markvissum hætti og hvað þarf að gera. Fyrirtæki sem eru að fara í framkvæmdir eða stækkun á húsnæði eru sérstaklega hvött til að skrá sig á kynninguna.

Gert er ráð fyrir því að kynningin taki 30-40 mínútur en hún fer fram í gegnum fjarfundabúnaðinn Teams og verður hlekkur sendur á skráða þátttakendur. Hámarksfjöldi þátttakenda er 12.

Skráning:

Veljið dagsetningu

Póstlisti