Fara í efni

Áfangastaðaáætlanir kynntar 15. nóvember

Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson.
Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson.

Þann 15. nóvember næstkomandi mun Ferðamálastofa halda kynningu á áfangastaðaáætlunum allra landshluta. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu í Reykjavík kl. 13-16.

Sjö áfangastaðaáætlanir

Gerð áfangastaðaáætlana er heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað. Við gerð áfangastaðaáætlana var landinu skipt upp eftir verkefnasvæðum markaðsstofa landshlutanna sem fóru með verkefnisstjórn á sínum svæðum. Áfangastaðaáætlanirnar eru því sjö talsins og á kynningarfundinum munu verkefnisstjórarnir kynna helstu niðurstöður hvers svæðis. Á eftir kynningunum verður tími fyrir spurningar og umræður. Nánar um verkefnið

Tenging við Landsáætlun

Fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti verða auk þess með innlegg um Landsáætlun, hvernig hún tengist áfangastaðaáætlunum og hvernig þessar áætlanir mun vinna saman í framtíðinni. Nánari dagskrá er í vinnslu. 

Fundarstjóri verður Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.