Ferðalög Íslendinga 2024 og ferðaáform þeirra 2025
| Nánari upplýsingar | |
|---|---|
| Titill | Ferðalög Íslendinga 2024 og ferðaáform þeirra 2025 |
| Lýsing |
Samkvæmt nýjustu könnun Ferðamálastofu um ferðalög landsmanna var ferðaárið 2024, líkt og árið áður, með líflegasta móti og áform um ferðalög á árinu 2025 ekki síður fjölbreytt. Könnunin, sem Gallup framkvæmdi fyrir Ferðamálastofu í byrjun ársins, sýnir að um 85% landsmanna ferðuðust innanlands á síðasta ári, um 72% fóru í dagsferð og um 81% í ferð til útlanda. Um 93% hafa áform um ferðalög ýmist innanlands eða utan.
Samandregnar niðurstöður um ferðalög landsmanna 2024:
Ferðalög innanlands
Dagsferðir
Utanlandsferðir
Ferðaáform 2025Nærri þrír af hverjum tíu (28,5%) landsmönnum hyggjast ferðast meira innanlands á árinu 2025 en þeir gerðu í fyrra, ríflega helmingur (54,9%) ætlar að ferðast álíka mikið og um 16,7% minna. Þegar kemur að utanlandsferðum, áformar ríflega fjórðungur (26,6%) að ferðast meira til útlanda, um helmingur (49,9%) álíka mikið og tæplega fjórðungur (23,5%) minna. Til samanburðar má nefna að á sama tíma fyrir ári síðan sögðust færri ætla að ferðast meira innanlands og utan – um fjórðungur (25,4%) innanlands og um fimmtungur (21,2%) til úlanda.
Hvaða ferðalög eru áformuðÝmiss konar ferðalög eru fyrirhuguð á árinu 2025. Af innanlandsferðum virðast sumarbústaðaferðir vera vinsælastar en þar á eftir koma heimsóknir til vina og ættingja, sem og borgar- og bæjarferðir innanlands. Ferðir þar sem veðrið ræður miklu um för njóta einnig vinsælda, líkt og ferðalög með vinum og klúbbum. Þegar kemur að utanlandsferðum eru flestir á því að fara í borgarferðir en sólarlandaferðir fylgja fast á eftir.
Hvað stendur helst í veginumFlestir landsmenn nefndu veðrið og hátt verðlag sem helstu hindranir fyrir innanlandsferðum á árinu 2025. Til samanburðar nefndu einungis 25,2% veðrið sem fyrirstöðu á sama tíma í fyrra en álíka hátt hlutfall (40,8%) taldi verðlagið hindrun. Þessar niðurstöður endurspeglast einnig í meðmælaskori (NPS) fyrir innanlandsferðir, sem mældist 14 stig – svipað og í fyrra. Ástæður sem svarendur gáfu í tengslum við lágt skor tengdust að mestu leyti háu verði í ferðaþjónustu á Íslandi, sem virðist áfram draga úr jákvæðni gagnvart innanlandsferðalögum.
Hvaða staðir eru mest spennandiÞó svo að helmingur landsmanna segist oftast fara á sömu staði þegar ferðast er innanlands, langar 77% að upplifa eitthvað nýtt og heimsækja áður ókunn svæði. Þeir staðir eða svæði sem svarendum þykja mest spennandi til ferðalaga eru:
Um könnuninaKönnunin var unnin sem netkönnun á tímabilinu 24. janúar til 26. febrúar 2025. Úrtakið var 2.452 einstaklingar, 18 ára og eldri af landinu öllu, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup. Svarfjöldi var 1.272 einstaklingar og var þátttökuhlutfallið 48,1%. Gögn könnunarinnar voru vigtuð til þess að úrtakið endurspeglaði þýðið með tilliti til kyns, aldurs og búsetu. Framkvæmd og úrvinnsla var í höndum Gallup í samvinnu við Ferðamálastofu. Í yfirgripsmikilli skýrslu um könnunina eru niðurstöður settar fram í 12 köflum með myndrænum hætti og í töflum, auk viðauka og leiðbeininga um túlkun niðurstaðna. Fremst eru samandregnar niðurstöður en þaðan er vísað í nánari útlistun á niðurstöðum einstakra spurninga. Í viðbótarskýrslu má finna niðurstöður úr spurningu um ástundun 19 útivistarmöguleika sem landsmenn stunda í daglegu lífi og á ferðalögum sér til heilsubótar og/eða ánægju. Könnunin hefur verið gerð árlega 16 ár í röð og fátítt er að til sé svo löng og samfelld tímalína samanburðarhæfra gagna, ekki síst í ferðaþjónustu.
Skýrslur* NPS (Net Promoter score): Um er að ræða alþjóðlegan mælikvarða sem segir til um mismun á hlutfalli þeirra sem eru tilbúnir að mæla með t.d. áfangastað, fyrirtæki eða vöru og hlutfalli þeirra sem eru líklegri til að mæla gegn sömu þáttum. NPS skor getur verið á bilinu -100 til 100. Nánari upplýsingar gefur Oddný Þóra Óladóttir - oddny@ferdamalastofa.is |
| Flokkun | |
|---|---|
| Flokkur | Ferðavenjur |
| Útgáfuár | 2025 |
| Útgefandi | Ferðamálastofa |
| Leitarorð | ferðavenjur, ferðaáform, ferðir 2024, ferðalög, ferðalag, ferðalög íslendinga, innanlands, innanlandskönnun, ferðahegðun, sumar, sumarfrí |




