Fara í efni

Yfir hálf milljón ferðamanna frá áramótum

Ferðamenn í maí 2016Um 124 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í maí síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 33 þúsund fleiri en í maí á síðasta ári. Aukningin nemur 36,5% milli ára.

Ferðamönnum heldur því áfram að fjölga milli ára en aukningin var 23,6% í janúar, 42,9% í febrúar, 38,1% í mars og 32,5% í apríl. Heildarfjöldi ferðamanna frá áramótum er um 513 þúsund, eða 35,2% fleiri miðað við fjölda ferðamanna á tímabilinu janúar til maí árið 2015.

Bandaríkjamenn og Bretar um 40% ferðamanna í maí

10 fjölmennustu þjóðerninUm 77% ferðamanna í nýliðnum maí voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 26,2% af heildarfjölda en næstir komu Bretar, 12,8%. Þar á eftir fylgdu Þjóðverjar (7,8%), Kanadamenn (6,0%), Norðmenn (5,2%), Svíar (4,9%), Frakkar (4,5%), Danir (3,6%), Hollendingar (2,8%) og Pólverjar (2,7%).

Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Bretum, Kanadamönnum, Þjóðverjum og Frökkum mest milli ára en 12.296 fleiri Bandaríkjamenn komu í maí í ár en í sama mánuði í fyrra, 5.143 fleiri Bretar, 2.946 fleiri Kanadamenn, 2.870 fleiri Þjóðverjar og 1.022 fleiri Frakkar. Þessar fimm þjóðir báru uppi aukninguna í maí að miklu leyti milli ára eða 73,1% af heildaraukningu.

Ferðamenn eftir markaðssvæðumNíföldun N-Ameríkana frá 2010

Þegar litið er til fjölda ferðamanna í nýliðnum maímánuði má sjá verulega fjölgun frá árinu 2010. Þannig hefur fjöldi ferðamanna frá Norðurlöndunum meira en tvöfaldast, fjöldi Breta fimmfaldast, fjöldi ferðamanna frá Mið- og S-Evrópu meira en þrefaldast, fjöldi N-Ameríkana nífaldast og fjöldi ferðamanna frá löndum sem lenda í hópnum ,,annað“ fimmfaldast.

Hlutfall N-Ameríkana hækkar en Norðurlandabúa lækkar

Samsetning ferðamanan eftir markaðssvæðumSamsetning ferðamanna eftir markaðssvæðum hefur breyst töluvert frá árinu 2010 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar. Í maí síðastliðnum voru Norðurlandabúar tæp 16% ferðamanna en hlutfall þeirra af heild hefur lækkað verulega síðustu ár, hefur farið úr 32,5% ferðamanna árið 2010 í að vera 15,8% árið 2015. Hlutdeild N-Ameríkana hefur hins vegar farið vaxandi, var 15,4% af heild árið 2010 en var komin í 23,5% í ár. Hlutdeild annarra markaðssvæða hefur verið á líku róli á tímabilinu 2010 til 2016. 

Ferðir Íslendinga utan

Um 47 þúsund Íslendingar fóru utan í maí síðastliðnum eða 5.300 fleiri en árið 2015. Um er að ræða 12,8% fleiri brottfarir en í maí 2015.

Nánari upplýsingar

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Tafla yfir fjölda ferðamanna