Fara í efni

Um þrjú þúsund brottfarir erlendra farþega í nóvember

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um þrjú þúsund í nýliðnum nóvembermánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia, eða 97,5% færri en í nóvember 2019, þegar brottfarir voru um 131 þúsund talsins. Langflestar brottfarir má rekja til Pólverja eða um fjórðung (24,3%).

Alls fóru 5.169 farþegar úr landi um Keflavíkurflugvöll í nóvember þannig að hlutfall útlendinga var 63%. Íslendingar voru 1.913 talsins eða 37%. Í sama mánuði í fyrra fóru 176.531 úr landi, 74,2% þeirra útlendingar. 

ferðamenn nóv

Tæp hálf milljón frá áramótum 

Frá áramótum hafa um 470 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 74,7% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega tæplega 1,9 milljón talsins.

Þetta er sjötti mánuður ársins þar sem erlendum brottförum hefur fækkað um og yfir 95% eins og sjá má af töflunni hér til hliðar. 

Ferðir Íslendinga utan

Brottfarir Íslendinga voru 1.913 talsins í nóvember eða 95,8% færri en í sama mánuði fyrir ári. Frá áramótum (janúar-nóvember) hafa tæplega 127 þúsund Íslendingar farið utan en um er að ræða um 441 þúsund færri brottfarir en á sama tímabili í fyrra. Nemur fækkunin 77,7% milli tímabila.

Nánari upplýsingar

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Niðurstöður um brottfarartalningar má jafnframt nálgast í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Farþegar.