Fara í efni

Um 189 þúsund ferðamenn í ágúst

Ferðamenn í ágúst 2002-2015Um 189 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í ágúst síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 36 þúsund fleiri en í ágúst á síðasta ári. Aukningin nemur 23,4% milli ára og hefur hún ekki mælst svo há milli ára í ágúst frá því Ferðamálastofa hóf talningar.

Aukning hefur verið alla mánuði ársins á milli ára eða 34,5% í janúar, 34,4% í febrúar, 26,8% í mars, 20,9% í apríl, 36,4% í maí, 24,2% í júní og 25,0% í júlí.

72% ferðamanna í ágúst af tíu þjóðernum

10 fjölmennustu þjóðerni í ágústUm 72% ferðamanna í ágúst síðastliðnum voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 19,2% af heildarfjölda og næstfjölmennastir voru Þjóðverjar eða 12,3% af heild. Þar á eftir fylgdu síðan Frakkar (8,5%), Bretar (8,0%), Ítalir (4,8%), Spánverjar (4,8%), Kínverjar (4,3%), Kanadamenn (3,7%), Danir (3,2%) og Svíar (3,1%).
Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Þjóðverjum, Bretum og Kínverjum mest milli ára í ágúst en 13.897 fleiri Bandaríkjamenn komu í ágúst í ár en í fyrra, 3.906 fleiri Þjóðverjar, 3.907 fleiri Bretar og 3.698 fleiri Kínverjar. Þessar fjórar þjóðir báru uppi 70,6% aukningu ferðamanna í ágúst. Nokkrum þjóðum fækkaði hins vegar í ágúst í ár frá því í fyrra. Þannig fækkaði Rússum um 51,3% og Norðmönnum um 12,2%.

Fjöldi ferðamanna í ágúst á tímabilinu 2002-2015

Ferðamenn eftir markaðssvæðum

Ferðamönnum í ágúst hefur fjölgað jafnt og þétt frá því Ferðamálastofa hóf talningar á Keflavíkurflugvelli árið 2002. Heildarfjöldi ferðamanna í ágústmánuði hefur nærri fjórfaldast frá árinu 2002 og munar þá mestu um aukningu N-Ameríkana sem hafa meira en sjöfaldast og þeirra sem flokkast undir ,,annað“ sem hafa einnig sjöfaldast. Ferðamenn frá Mið- og S-Evrópu og Bretlandi hafa nærri þrefaldast og Norðurlandabúar ríflega tvöfaldast.

Um 887 þúsund ferðamenn frá áramótum

Það sem af er ári hafa 887.146 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða 187.336 fleiri en á sama tíma í fyrra. Um er að ræða 26,8% aukningu milli ára. Veruleg aukning hefur verið frá flestum mörkuðum nema Norðurlöndunum sem hafa staðið í stað. Aukningin hefur verið 46,4% frá N-Ameríku, 28,2% frá Bretlandi, 19,5% frá Mið- og S-Evrópu og 36,1% frá öðrum löndum sem ekki eru talin sérstaklega og flokkast undir ,,annað“.

Ferðir Íslendinga utan

Tæplega 40 þúsund Íslendingar fóru utan í ágúst síðastliðnum eða um þrjú þúsund fleiri en í ágúst árið 2014. Frá áramótum hafa 293.083 Íslendingar farið utan eða 31.805 fleiri en á sama tímabili árið 2014.

Nánari upplýsingar

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Ferðamenn um Keflavíkurfluvöll - tafla