Fara í efni

Skráning hafin á Ferðatæknimótið 2026 í Ferðaþjónustuvikunni

Skráning hafin á Ferðatæknimótið 2026 í Ferðaþjónustuvikunni

Skráning hafin á Ferðatæknimótið sem Ferðamálastofa og Íslenski ferðaklasinn í samstarfi við EDIH - Miðstöð stafrænnar nýsköpunar, halda þann 14. janúar næstkomandi kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica Hotel (salur H+I á 2. hæð), sem hluta af Ferðaþjónustuvikunni.

Stefnumót fyrirtækja um lausnir á sviði ferðatækni og stafrænna tækifæra sjálfbærni og öryggi

Ferðatæknimót leiðir saman fyrirtæki, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á örstefnumótum. Ferðatæknimót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir/bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði ferðaþjónustu. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við ferðatækni og aðra starfræna þróun, sjálfbærni og öryggi innan ferðaþjónustunnar.

Markmið viðburðarins eru að:

  • Leiða saman ferðaþjónustufyrirtæki og tækni-, sjálfbærni og öryggisfyrirtæki
  • Stuðla að stafrænni þróun og markvissri notkun á tækni í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja, öllum til hagsbóta
  • Hvetja ferðaþjónustufyrirtæki til að kynna sér þær lausnir og tækni sem eru í boði
  • Bjóða tækni, sjálfbærni og öryggisfyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu

Dagskrá

  • 15:00 Húsið opnar
  • 15:15 Stefnumót hefjast
    7x15 mínútna fundir fara fram á 1:45klst.
  • 17:00 Dagskrá lýkur

Skráning:

Skráning fer fram á sérstökum vef viðburðarins og þar eru allar nánari upplýsingar.

 

EDIH-IS er samstarfsaðili að þessum viðburði en EDIH-IS er samstarfsvettvangur sem hefur það að markmiði að styðja við stafræna nýsköpun og þróun hjá íslenskum fyrirtækjum og opinberum aðilum.

Aftur í dagskrá Feraðaþjónustuviku 2026