Fara í efni

Nýir teljarar og tækni tekin upp á vinsælustu áfangastöðunum

Hér má sjá annars vegar nýja teljarann (til vinstri) og hins vegar þann gamla á gönguleiðinni að Brú…
Hér má sjá annars vegar nýja teljarann (til vinstri) og hins vegar þann gamla á gönguleiðinni að Brúnni á milli heimsálfa á Reykjanesi.

Ferðamálastofa er að ljúka við að endurnýja alla teljara og tæknibúnað sem notaður er við talningu gesta á fjölmennustu áfangastöðum landsins. Í heildina nær verkefnið til um 40 áfangastaða en kerfið skilar mun nákvæmari og tímanlegri gögnum en áður var unnt að afla.

 

Mikilvægt til að taka upplýstar ákvarðanir

„Markmiðið með talningunum er að afla rauntímaupplýsinga um fjölda gesta en slík gögn eru mikilvæg fyrir okkur m.a. til að taka upplýstar ákvarðanir um uppbyggingu á áfangastöðunum, skipulag og þjónustu en ekki síst til að vernda þá fyrir álagi,“ segir Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri. „Með betri og samræmdari gögnum getum við greint þróun yfir ákveðin tímabil og brugðist fyrr við ef umferð eykst hratt á tilteknum svæðum. Það er lykilatriði þegar kemur að sjálfbærri þróun áfangastaða.“

 

Fjölmennustu staðirnir

Samkvæmt gögnum Ferðamálastofu komu flestir ferðamenn á Geysi og Gullfoss í fyrra, eða um ein og hálf milljón ferðamanna á hvorn stað. Ríflega 630 þúsund manns komu á Þingvelli, tæplega 350 þúsund í Fjaðrárgljúfur, 315 þúsund í Reynisfjöru og um 250 þúsund að Seltúni á Reykjanesi. Gögnin sýna einnig skýra árstíðasveiflu, þar sem yfirgnæfandi meirihluti heimsókna á sér stað yfir sumarmánuðina.

 

Uppfærist daglega í mælaborði ferðaþjónustunnar

Fylgjast má með daglegum fjölda gesta á mælaborði ferðaþjónustunnar, undir Ferðamenn/Fjöldi gesta á áfangastöðum.

 

Búist við aukningu við Háafoss

Eins og fram kom í fréttum fyrir stuttu kom Ferðamálastofa upp teljara við Háafoss í Þjórsárdal. Ástæðan er meðal annars sú að fossinn birtist nýverið í myndskeiði í nýjustu þáttaröðinni af Stranger Things og í kjölfarið mældist um 5 þúsund prósenta aukning í leit að nafni fossins á netinu. Viðbúið er að þessi aukna athygli muni leiða til stóraukins áhuga ferðamanna á næstu misserum, ekki síst yfir sumartímann þegar aðstæður til aksturs upp á hálendið sunnanlands eru góðar. Með teljaranum verður hægt að fylgjast náið með þróuninni og meta áhrif aukinnar alþjóðlegrar athygli á áfangastaðinn.

 

Nánari upplýsingar veita:
Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri, arnar@ferdamalastofa.is / 694-7731
Jóhann Viðar Ívarsson, greinandi á sviði rannsókna og þekkingar, johann@ferdamalastofa.is / sími: 535 5516