Fara í efni

Háifoss gæti orðið einn af vinsælustu áfangastöðum landsins

Háifoss. Mynd: Markaðsstofa Suðurlands/©Páll Jökull Pétursson
Háifoss. Mynd: Markaðsstofa Suðurlands/©Páll Jökull Pétursson

Háifoss í Þjórsárdal gæti orðið einn af vinsælustu áfangastöðum erlendra ferðamanna á komandi árum, að mati Ferðamálastofu. Ástæðan er meðal annars sú að fossinn birtist nýverið í myndskeiði í nýjustu þáttaröðinni af Stranger Things. Í kjölfarið mældist um 5 þúsund prósenta aukning í leit að nafni fossins á netinu (þó líklega út frá lágu grunngildi).

 

Ferðamálastofa hefur mælingar

Viðbúið er að þessi aukna athygli muni leiða til stóraukins áhuga ferðamanna á næstu misserum, ekki síst yfir sumartímann þegar aðstæður til aksturs upp á hálendið sunnanlands eru góðar. Í ljósi þessa hefur Ferðamálastofa hafið reglubundna talningu ferðamanna við Háafoss.

 

Höfum dæmin fyrir okkur

„Það eru margir sem spá því að Háifoss verði næsta Stuðlagil - að umferð um hann muni margfaldast,“ segir Jóhann Viðar Ívarsson, greinandi á sviði rannsókna og þekkingar hjá Ferðamálastofu. „Reynsla okkar er sú að birting íslenskra áfangastaða í vinsælu alþjóðlegu myndefni getur haft afgerandi áhrif á ferðamannastrauminn. Heimsóknum að flugvélaflakinu á Sólheimasandi og í Fjaðrárgljúfur fjölgaði til dæmis verulega eftir að myndskeið frá þessum stöðum birtust í tónlistarmyndbandi Justin Bieber.“

 

Afla gagna til að taka upplýstar ákvarðanir

Markmiðið með talningunni er að afla rauntímaupplýsinga um fjölda gesta. Slík gögn eru mikilvæg til að meta og taka upplýstar ákvarðanir um uppbyggingu á svæðinu, skipulag og þjónustu en ekki síst til að vernda svæðið fyrir álagi.

Fylgjast má með daglegum fjölda gesta á Mælaborði ferðaþjónustunnar.

Fyrirhuguð er lagning nýs vegar að fossinum en núverandi vegur er slæmur og aðstaða engin. Þá liggur átta kílómetra gönguleið á milli Háafoss og þjóðaldarbæjarins á Stöng í Þjórsárdal, um tilkomumikið Fossárgil sem fossinn fellur niður í.

Suðurland er eitt öflugasta ferðaþjónustusvæði landsins og þrátt fyrir mikla uppbyggingu á undanförnum árum sér enn ekki fyrir endann á frekari fjárfestingu, einkum í gistingu.

 

Frekari upplýsingar veitir Jóhann Viðar Ívarsson, sími: 535 5516.