Niðurfelling tveggja ferðaskrifstofuleyfa – Lýst eftir kröfum í Ferðatryggingasjóð
27.05.2025

Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi tveggja ferðaskrifstofa, Scandinavia Travel North ehf. og TripGuide Iceland ehf.
Rekstri verði hætt og vef lokað
Félögin hafa því hvorki heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða dagsferðir né að hafa milligöngu um sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni. Ferðamálastofa hefur farið fram á rekstri verði hætt og vef þeirra lokað.
Frestur til að senda inn kröfu er til 26. júlí
Ferðamenn sem keypt hafa pakkaferð eða samtengda ferðatilhögun af félögunum geta lagt fram kröfu til Ferðatryggingasjóðs um endurgreiðslu, hafi ferðaskrifstofurnar ekki endurgreitt viðkomandi. Frestur til að senda kröfu er til og með 26. júlí 2025.