Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu - Ferðaskrifstofuleyfi Scandinavia Travel North ehf. fellt úr gildi

21.05.2025

Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi Scandinavia Travel North ehf. nr. 2017-005 kt. 420704-2240, frá og með 21. maí 2025 þar sem leyfishafi uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir útgáfu leyfis.

Félagið hefur því ekki lengur heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða að milligangast sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni.

Ferðamaður sem hefur keypt pakkaferð eða samtengda ferðatilhögun af Scandinavia Travel North ehf. getur lagt fram kröfu til Ferðatryggingasjóðs um endurgreiðslu hafi ferðaskrifstofan ekki endurgreitt ferðamanninum. Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning vegna þess að leyfi félagsins var fellt niður af hálfu Ferðamálastofu.

Frestur til að senda kröfu í tryggingarfé er til og með 26. júlí 2025. Krafa þarf að berast innan kröfulýsingarfrests. Kröfur sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina. Hægt er að senda inn kröfur hérna: https://www.ferdamalastofa.is/is/krofur-scandinavia-travel-north Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.

Sjá nánar á vef Ferðamálastofu

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 535 5500 eða á netfanginu krofur@ferdamalastofa.is.