Fara í efni

Mikill áhugi á almyrkvanum – flestir ætla að fylgjast með frá heimili eða í næsta nágrenni

Spurning: Hvaða staðhæfing lýsir best áformum þínum um að fylgjast með almyrkvanum 12. ágúst 2026?
Spurning: Hvaða staðhæfing lýsir best áformum þínum um að fylgjast með almyrkvanum 12. ágúst 2026?

Átta af hverjum tíu landsmönnum segjast annaðhvort ætla að fylgjast með almyrkvanum sem verður 12. ágúst eða hafa áhuga á því. Þetta kemur fram í niðurstöðum úr spurningum Ferðamálastofu í spurningavagni Gallup* í nýliðnum júní.

Algengast er að fólk ætli að fylgjast með almyrkvanum frá heimili sínu eða í næsta nágrenni (43,3%), en 6,2% segjast ætla að ferðast sérstaklega til að upplifa myrkvann. Þá segjast 32,6% hafa áhuga á að fylgjast með honum en eiga eftir að ákveða hvaðan. Um 14,8% ætla ekki að fylgjast með almyrkvanum og 3,1% verða erlendis þegar hann verður.

Af þeim sem ætla að ferðast vegna almyrkvans eru Vestfirðir og Vesturland vinsælustu áfangastaðirnir. Um þriðjungur stefnir á hvort svæði um sig en færri nefna höfuðborgarsvæðið eða Reykjanes.

Af þeim sem höfðu áhuga á að fylgjast með almyrkvanum en höfðu ekki ákveðið hvaðan, sögðust tæplega þrír af hverjum fimm líklegastir til að gera það frá heimili sínu eða í næsta nágrenni. Um þriðjungur sagðist þó enn ekki hafa gert upp hug sinn.

Þegar spurt var um gistingu meðal þeirra sem ætla að ferðast eða eru líklegir til að ferðast vegna almyrkvans sagðist tæplega helmingur ætla að gista á svæðinu. Af þeim sem sögðust ætla að gista nefndu flestir gistingu hjá vinum eða ættingjum eða á tjaldsvæði.

Sambærilegar spurningar voru lagðar fyrir í janúar síðastliðnum. Í samanburði við þær niðurstöður hafa fleiri nú gert upp hug sinn um hvaðan þeir ætla að fylgjast með almyrkvanum.

Nánari upplýsingar um niðurstöðurnar má finna hér almyrkvi.pdf

*Spurningarnar voru lagðar fyrir í spurningavagni Gallup dagana 18.–30. júní 2026. Úrtakið var 2.296 einstaklingar, 18 ára og eldri, og var svarhlutfallið 34,9%