Ferðaþjónusta í tölum – sumar 2026
Í samantektinni Ferðaþjónusta í tölum – sumar 2026 má sjá samantekt um brottfarartalningar erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll, gistinætur á skráðum gististöðum, framboð og nýtingu á hótelum og nokkrar niðurstöður er varða dvöl ferðamanna á Íslandi s.s. um tilgang ferðar, dvalarlengd og heimsóknir eftir landshlutum.
Um 830 þúsund erlendir ferðamenn í sumar
Um 830 þúsund brottfarir erlendra ferðamanna voru taldar um Keflavíkurflugvöll* sumarið 2026, 2,3% færri en sumarið 2025. Þetta er annað fjölmennasta ferðamannasumarið frá upphafi mælinga. Ferðamönnum fækkaði milli ára í júní og júlí en fjöldinn í ágúst var svipaður og árið áður.
Bandaríkjamenn voru langfjölmennastir, um 285 þúsund talsins, eða 34,4% ferðamanna. Fjöldi þeirra var svipaður og sumarið 2025. Þjóðverjar voru næstfjölmennastir, um 66 þúsund talsins og hafði þeim fjölgað um 3,4% milli ára. Kanadamenn voru í þriðja sæti, um 56 þúsund talsins og fjölgaði þeim um 39,7% frá fyrra sumri. Í fjórða sæti voru Bretar, um 51 þúsund, og hafði þeim fjölgað um 17,5% milli ára.
Langflestir ferðamenn, eða um 94%, voru í fríi á Íslandi í sumar. Um 4,4% voru í heimsókn hjá vinum og ættingjum og tæplega 2% komu í öðrum tilgangi.
Um 91% ferðamanna heimsóttu höfuðborgarsvæðið á ferð sinni um landið, um 81% Suðurland, um 76% Reykjanes, 62% Vesturland, 46% Norðurland, 43% Austurland og 25% Vestfirði.


Meðaldvalarlengd 7,7 nætur
Ferðamenn dvöldu að jafnaði 7,7 nætur á ferðalögum um Ísland sumarið 2026, um hálfri nótt skemur en sumarið 2025.
Bandaríkjamenn dvöldu að jafnaði 6,8 nætur sumarið 2026, líkt og sumarið áður. Meðal tíu fjölmennustu þjóðernanna dvöldu Frakkar lengst, eða 9,9 nætur, en þar á eftir komu Þjóðverjar og Hollendingar með 9,4 nætur. Athyglisvert er að dvalarlengd Kínverja og Kanadamanna jókst umtalsvert milli sumranna 2025 og 2026, eða um 33,3% og 16,2%, á sama tíma og meðaldvalarlengd ferðamanna í heild styttist.
Gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum með mesta móti
Gistinætur á hótelum voru um 1,8 milljónir sumarið 2026, um 23 þúsund færri (-1,2%) en sumarið 2025. Þrátt fyrir fækkunina var fjöldinn með því mesta sem mælst hefur að sumri til.
Rúmlega níu af hverjum tíu gistinóttum á hótelum yfir sumarið voru gistinætur útlendinga, alls um 1,7 milljónir. Þeim fækkaði um 12 þúsund (-0,7%) frá sumrinu 2025.
Nýting herbergja á hótelum nærri 90% í júlí og ágúst
Sumarið 2026 voru tæplega 13 þúsund hótelherbergi í boði á landinu þegar mest var, í ágúst. Þar af voru 44,2% á höfuðborgarsvæðinu. Framboð herbergja jókst lítillega á heildina litið miðað við sumarið 2025.
Herbergjanýting á hótelum á landsvísu var 77,5% í júní, 87,9% í júlí og 88,7% í ágúst. Í júní var nýtingin hæst á Suðurlandi (82,2%), Austurlandi (80,4%) og á höfuðborgarsvæðinu (78,2%) en á bilinu 67,5-77,0% í öðrum landshlutum. Í júlí og ágúst var nýtingin nærri eða yfir 90% á Suðurnesjum, Austurlandi og Suðurlandi. Það átti einnig við um höfuðborgarsvæðið í ágúst, þegar nýtingin var 89,0%, en í júlí var hún 87,2%. Á Vesturlandi/Vestfjörðum og Norðurlandi var nýtingin lægri þessa tvo mánuði, eða á bilinu 79,2%-83,1%.
Metfjöldi gistinótta á skráðum gististöðum í sumar
Gistinætur á skráðum gististöðum voru um 4,4 milljónir sumarið 2026, eða 3,1% fleiri en sumarið 2025. Þær hafa ekki áður mælst svo margar að sumri til.
Flestar gistinætur voru í júlí (39,7%), rúmur þriðjungur (35,2%) í ágúst og um fjórðungur (25,1%) í júní. Af heildarfjölda gistinótta sumarið 2026 voru gistinætur útlendinga 83,1% en gistinætur Íslendinga 16,9%.
