Fara í efni

Ferðaþjónusta í tölum - október 2020

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Ferðaþjónusta í tölum - október 2020 kom út í dag. Um að ræða mánaðarlega útgáfu hjá Ferðamálastofu, stutta samantekt með nýjustu talnaupplýsingum sem Ferðamálastofa safnar um ferðamenn og ferðaþjónustu ásamt talnagögnum frá Hagstofu Íslands. Áhersla er lögð á að skoða töluleg gögn ár aftur í tímann og þær breytingar sem hafa orðið.

Í þessari útgáfu er m.a. að finna samantekt um:

  • fjölda ferðamanna um Keflavíkurflugvöll
  • gistinætur
  • herbergjanýtingu á hótelum
  • tilgang Íslandsferðar, dvalarlengd og NPS skor

Ferðamenn undir milljónina

Meðal áhugaveðrar niðurstaðna í þessari útgáfu má nefna að nú gerist það í fyrsta sinn í langan tíma að fjöldi ferðamanna til landsins á 12 mánaða tímabili fer undir 1 milljón, samkvæmt brottfarartalningum á Keflavíkurflugvelli. Síðast gerðist það á  árinu 2014.

Sem fyrr segir verður samantektin uppfærð mánaðarlega og er þetta er liður í aukinni áherslu Ferðamálastofu á rannsóknir, söfnun og miðlun talnaupplýsinga. 

Allar ábendingar um efni og efnistök eru vel þegnar og sendast á oddny@ferdamalastofa.is