Fara í efni

Ferðamenn í maí 54 þúsund talsins

Ferðamenn í maí. Smellið á myndina til að sjá hana stærri.
Ferðamenn í maí. Smellið á myndina til að sjá hana stærri.

Um 54 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í nýliðnum maímánuði eða um átta þúsund fleiri en í maí 2012. Um er að ræða 18,6% aukningu milli ára.

Nærri þreföld aukning á 12 ára tímabili

Þegar litið er til fjölda ferðamanna í maímánuði á tólf ára tímabili (2002-2013) má sjá nærri þrefalda aukningu en ferðamönnum hefur fjölgað úr um 19 þúsundum í um 54 þúsund. Um er að ræða 10,9% aukningu milli ára að jafnaði þó svo miklar sveiflur séu milli ára (sjá mynd).

Helmingur ferðamanna frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Noregi og Þýskalandi

Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í maí frá Bandaríkjunum (16,5%), Bretlandi (12,6%), Noregi (10,8%) og Þýskalandi (9,6%). Þar á eftir komu Svíar (6,9%), Danir (6,4%), Frakkar (5,6%), Kanadamenn (4,2%) og Hollendingar (3,2%). Samtals voru þessar níu þjóðir 75,8% af heildarfjölda ferðamanna í maí.

Af einstaka þjóðum fjölgaði Bretum, Bandaríkjamönnum, Þjóðverjum og Norðmönnum mest milli ára í maí. Þannig komu 2.411 fleiri Bretar en í fyrra, 1.395 fleiri Bandaríkjamenn, 1.118 fleiri Þjóðverjar og 976 fleiri Norðmenn.

Aukning frá öllum markaðssvæðum

Þegar aukning milli ára er skoðuð eftir einstaka markaðssvæðum má sjá umtalsverða aukningu milli ára í maí frá Bretlandi eða um 55,4%. N-Ameríkönum fjölgaði síðan um 20,9%, Mið- og S-Evrópubúum um 17,4% og Norðurlandabúum um 13,4%. Aukning ferðamanna frá löndum sem eru flokkuð undir annað var hins vegar í minna mæli eða um 6,9%.

Um 222 þúsund ferðamenn frá áramótum

Frá áramótum hafa 221.550 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 51 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Um er að ræða 29,9% aukningu milli ára. Bretum hefur fjölgað um 51,7%, N-Ameríkönum um 33,7%, ferðamönnum frá Mið- og S-Evrópu um 25,1% og ferðamönnum frá löndum sem flokkast undir ,,annað” um 23,9%. Brottförum Norðurlandabúa hefur hins vegar fjölgað mun minna eða um 9,5%.

Utanferðir Íslendinga

Um 34 þúsund Íslendingar fór utan í maí eða þrjú þúsund fleiri en í maí í fyrra Frá áramótum hafa um 134 þúsund Íslendingar farið utan, um 2.500 fleiri en á sama tímabili árið 2012. Aukningin nemur 1,9% milli ára.

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Talnaefni / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Nánari upplýsingar veitir Oddný Þóra Óladóttir, rannsóknastjóri oddny@ferdamalastofa.is

fjöldi ferðamanna tafla