Fara í efni

5,8% fækkun milli ára í janúar

5,8% fækkun milli ára í janúar

Brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 139 þúsund í nýliðnum janúar eða um 8.500 færri en í janúar árið 2018, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkun milli ára nemur 5,8%.

Bretar og Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í janúar eða 46,2% brottfara. Í báðum hópum var um fækkun að ræða á milli ára. Bretum fækkaði um 8,6% og Bandaríkjamönnum um 11,9%.

 

Fjölmennustu þjóðernin

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í janúar ár tilkomnar vegna Breta og Bandaríkjamanna, sem fyrr segir. Bretar voru fjölmennastir, um 34.700 talsins, og bottfarir Bandaríkjamanna komu þar á eftir en þær mældust um 29.500. Samtals voru brottfarir þessara tveggja hópa 46,2% af heildarbrottförum.

Kínverjar voru þriðju fjölmennastir í janúar síðastliðnum en brottfarir þeirra voru 7.700 talsins (4,8% af heild) og fjölgaði þeim um 18,4% milli ára. Brottfarir Þjóðverja voru í fjórða sæti, um 6.600 talsins (4,8% af heild) og fjölgaði þeim jafnframt eða um 7,7% milli ára.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Frakka (3,9% af heild), Pólverja (3,8% af heild), Ástrala og Ný-Sjálendinga (2,6% af heild), Kanadamanna (2,5% af heild), Spánverja (2,1% af heild) og Dana (2,0% af heild).

*Nánari upplýsingar

Talning Ferðamálastofu og Isavia er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu áður en komið er inn á brottfararsvæði og tölurnar ber að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Talningarnar ná yfir alla sem fara í gegnum hefðbundna öryggisleit.
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inni í þessum tölum. Niðurstöður úr könnnum sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega benda til að um 93% brottfararfarþega yfir vetrartímann séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og gisti eina eða fleiri nætur. Þeir sem koma inn í landið án þess apð gista hafa mælst um 2% sjálftengifarþegar hafa mælst á bilinu 2-4% og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma á bilinu 1,4-3,4%. Sjá nánar
Ferðamálastofa áréttar að fjöldi brottfara erlendra farþega gefur vísbendingu um þróun í komum ferðamanna til landsins. Til að álykta um breytingar á umsvifum í ferðaþjónustu þarf að líta til fleiri mælikvarða s.s. fjölda gistinótta og útgjalda ferðamanna.
Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.