Fara í efni

Eru ferðavenjur ólíkar eftir áfangastöðum?

Ljósmynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Ljósmynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Föstudaginn 14. desember næstkomandi býður Ferðamálastofa til hádegiskynningar á niðurstöðum könnunar sem fór fram í sumar á ferðavenjum og útgjöldum erlendra gesta í Reykjavík, Reykjanesbæ, Vík, Stykkishólmi, Ísafirði, Hvammstanga, Húsavík og Egilsstöðum. Um er að ræða verkefni sem tilheyrir reglulegri gagnasöfnun hins opinbera á ýmsum þáttum ferðaþjónustu og ferðamennsku á Íslandi. 

Greining á einkennum ferðamanna 

Í könnuninni var lögð áhersla á greiningu ýmissa einkennandi þátta ferðamanna á rannsóknarsvæðunum s.s. búsetulandi, ferðamáta, gistimáta og dvalarlengd auk þess sem ástæða heimsóknar og útgjaldamynstur þeirra var skoðað. 

Í kynningunni verða niðurstöður könnunarinnar reifaðar auk þess sem þær verða bornar saman við niðurstöður á landsvísu og fyrri kannanir. Fyrirhugað er að endurtaka könnunina á árinu 2019.

  • Lilja Rögnvaldsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Húsavík og Rannsóknamiðstöð ferðamanna (RMF) mun fara yfir niðurstöður könnunarinnar.
  • Dr. Gunnþóra Ólafsdóttir, forstöðumaður rannsókna- og tölfræðisviðs Ferðamálastofu stýrir fundi.

Staður og skráning

Kynningin fer fram í í húsakynnum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins við Skúlagötu 4 frá 12-13, í fyrirlestrarsal á 1. hæð. Allir velkomnir en vinsamlegast skráið þátttöku. Einnig verður hægt að fylgjast með beinni útsendingu á vef og Facebook-síðu Ferðamálastofu.

Næstu kynningar

Um er að ræða fyrsta viðburðinn í röð hádegisfyrirlestra sem Ferðamálastofa mun standa fyrir í vetur til kynningar á niðurstöðum rannsóknaverkefna og kannanna sem hún hefur haft umsjón með. Hádegiskynningarnar eru einnig hugsaðar sem tækifæri fyrir rannsakendur innan vísindasamfélagsins sem vilja koma niðurstöðum sínum á framfæri við atvinnugreinina og almenning. Næsti hádegisfyrirlestur er á dagskrá í janúar.